Tölfræði húsa

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

1910

Árið 1910 voru timburhús ráðandi á Heimaey en þau voru alls 144. Einungis voru 6 steinhús (eða steinsteypt) og fast á eftir fylgdu torfbæirnir en þeir voru alls 5. Alls voru 155 íbúðir í Vestmannaeyjum.

1920

Árið 1920 hafði íbúðum fjölgað upp 270 íbúðarhús. Þar af voru 231 timburhús, 37 steinhús, einn torfbær og eitt óskilgreint hús. Til gamans má geta þess að þetta ár voru aðeins 148 stein- og steinsteypuhús í kaupstöðum á landinu en timburhúsin mun fleiri eða 1176.

1950

Árið 1950 var mest af steinsteyptum íbúðarhúsum eða 339, Í öðru sæti voru timburhúsin en þau voru alls 233 að tölu og lestina ráku stein og timburhúsin en þau voru 17. Íbúðir, sem voru í eigu bæjarbúa, voru alls 584 talsins en leigjendaíbúðir voru 222. 461 íbúð var með vatnssalerni og 376 með útisalerni. Ekki höfðu margar íbúðir bað, aðeins 321 íbúð. Íbúðir sem höfðu ekki bað voru 516.

1960

Á því herrans ári 1960 voru húsin orðin 821. Af þeim voru 527 steinsteypt, 231 timburhús og 45 úr holsteini. Einbýlishús voru alls 606 talsins.



Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, I. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1982.