Sveinsína Aðalbjörg Árnadóttir Johnson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sveinsína Aðalbjörg Árnadóttir Johnson frá Löndum, húsfreyja í Spanish Fork í Utah fæddist 25. desember 1877 og lést í Vesturheimi 13. desember 1969.
Foreldrar hennar voru Árni Árnason, f. 21. febrúar 1855, d. 16. júlí 1931, og Solveig Þórdís Jórunn Sveinsdóttir, f. 24. apríl 1858, d. 4. nóvember 1920.

Sveinsína fluttist með foreldrum sínum til Utah 1880.

Maður Sveinsínu, (5. febrúar 1908), var Sigmundur Gíslason (Mundi Gíslason Geslison) námustarfsmaður og smiður í Utah, f. 29. október 1883, fór til Vesturheims 1885, d. 31. mars 1965.
Börn þeirra:
1. Desmond Gísli, f. 24. nóvember 1908.
2. Gilbert Árni, f. 1. desember 1910.
3. Arthur Mark, f. 26. desember 1911.
4. Byron Theodore Gislason kennaraskólakennari, biskup mormóna, mikill ,, Íslandsvinur“, f. 14. maí 1914 í Spanish Fork, d. 10. október 2001.
5. Clarence Mathew, f. 1917.
6. Lola Sólveig, f. 13. september 1924.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Magnús Haraldsson.
  • Our Pioneer Heritage Vol. 7. Kate B. Carter. Daughters of Utah Pioneers. Salt Lake City 1964.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-íslenzkar æviskrár. Benjamín Kristjánsson, Jónas Thordarson. Skjaldborg 1961-1992.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.