Svanhildur Jóhannesdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Svanhildur Jóhannesdóttir er unga stúlkan þarna við enda borðsins, þetta jólaboð var haldið jólin 1963 og er Svanhildur því 13 ára þegar þessi mynd er tekin. Hún reifaði minningar tengdar þessum jólum og þessu kaffiboði í bréfi til Eyglóar Björnsdóttur vinkonu sinnar í Eyjum, og eru þær á þessa leið:

„Ég sé að ég hef greitt mér hátíðlega fyrir þetta boð, „sett upp“ hárið eða greitt það í pulsu. Hárgreiðsla og Vestmannaeyjar eru tengd órjúfanlegum böndum í mínu lífi, ég hef eiginlega ekki greitt mér almennilega síðan ég var í Eyjum. Manstu þegar við komum úr sundi og rukum beint inn á baðherbergi með blautt hárið og greiddum og lögðum hárið á okkur í ótrúlegustu stellingar?

Viltu vita meira – viltu vita um peysuna sem ég er í? Þetta er grá peysa sem loddi við mig í mörg ár eftir þetta. Undir er ég í grænum sparikjól sem ég held að Rúnu frænku hafi þótt svo fínn. Ég faldi hann náttúrulega undir peysunni. Þetta er þegar Jenni bróðir er í fóstri hjá Önnu og Adda. Silla systir fékk pabba og mig til að fara til Eyja um jólin. Þannig náði hún systir mín saman þessari tvístruðu fjölskyldu okkar. Við komum með Herjólfi, það var mikið verkfall í gangi og ekki mátti skipa upp vörum. Við komum því með töskurnar okkar hlaðnar hangikjöti og öðrum nauðsynjum fyrir jólin. Eftir jól fóru þau til baka pabbi og Silla en ég ætlaði að vera eitthvað lengur. Þá var ekki flogið dögum saman því það var svo mikið öskufall úr Surtseyjargosinu. Niðri í bæ, þar sem var malbik og gangstéttir, var eins og maður gengi á teppi, svörtu öskuteppi, sem deyfði skósmelli og öll önnur hljóð. Mjög eftirminnilegt.

Svona var nú það“.

Úr verkefninu Byggðin undir hrauninu.

Samantekt Helgu Jónsdóttur árið 2007.

Eigandi myndarinnar er Kjartan Ásmundsson.