Steinunn Einarsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Steinunn Einarsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 1. ágúst 1801 og lést 17. júní 1861.
Faðir hennar var Einar bóndi á Kambi í Holtahreppi, f. 1772 á Ásmundarstöðum í Ásahreppi, d. 23. apríl 1836 í Hallstúni þar, Guðmundsson bónda á Kambi, f. 1736, d. 1811, Oddssonar bónda á Grafarbakka á Rangárvöllum, f. 1700, d. 1781, Jónssonar, og konu Odds, Þuríðar húsfreyju, f. 1701, d. í október 1766, Magnúsdóttur.
Móðir Einars á Kambi og kona Guðmundar var var Guðrún húsfreyja, f. 1740, Jónsdóttir. (Ætt óviss).

Móðir Steinunnar og barnsmóðir Einars á Kambi var Steinunn vinnukona, f. um 1770, Magnúsdóttir. (Ætt óviss).

Steinunn var tökustúlka í Vesturhjáleigu í Árbæjarsókn 1816. Hún var vinnukona í Miðey í A-Landeyjum 1935.
Húsfreyja var hún á Kirkjubæ 1840, og 1845 var hún þar með Jóni og barninu Ingigerði Þorsteinsdóttur, fæddri í Voðmúlastaðasókn. Steinunn var 50 ára ekkja þar 1850 með Guðmundi Þorgilssyni fyrirvinnu 50 ára og var í heimili Ingigerðar dóttur sinnar þar 1860.
Hún lést 1861.

I. Barnsfaðir Steinunnar var Jón Einarsson vinnumaður frá Keflavík, f. 20. nóvember 1806, d. 27. maí 1866.
Barnið var
1. Steinunn Jónsdóttir vinnukona í Vetleifsholtshelli í Ásahreppi, f. 6. október 1824, d. 21. apríl 1890.

II. Barnsfaðir Steinunnar var Þorsteinn.
Barnið var
2. Ingigerður Þorsteinsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 1830 í Voðmúlastaðasókn í Landeyjum, d. 26. apríl 1897, kona Erlendar Ingjaldssonar bónda, f. 1828, drukknaði við Bjarnarey 12. janúar 1887.

III. Eiginmaður Steinunnar var Jón Sveinsson sjómaður á Kirkjubæ, f. 1799 í Mýrdal, d. 29. október 1847 á Kirkjubæ.
Börn þeirra hér:
3. Þorbjörg Jónsdóttir, f. 18. apríl 1840. Hún finnst ekki síðan lífs né liðin.
4. Sveinn Jónsson, f. 10. apríl 1841, d. 16. apríl 1841 úr ginklofa.
5. Guðmundur Jónsson, f. 8. apríl 1843, d. 13. apríl 1843.
6. Guðrún Jónsdóttir, f. 4. ágúst 1844, d. 12. ágúst 1844 úr ginklofa.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók I – Holtahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra, Hellu 2006.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.