Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Glæsileg afmælisveisla Verðandi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Afmælisveisla Verðandi


Bergur Páll, formaður Verðandi afhendir Hilmari Snorrasyni, skólastjóra Slysabarnarskólans, peningagjöf.


Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi fagnaði 70 ára afmæli félagsins á síðasta ári. Afmælisveislan var haldin í Höllinni þar sem mikið var um dýrðir. Bergur Páll Kristinsson er formaður félagsins en hann heiðraði þá Þórð Rafn Sigurðsson, útgerðarmann í Vestmannaeyjum, fyrir sjávarútvegssafn sitt og Grím Karlsson úr Njarðvík, sem smíðað hefur fjölda bátalíkana í gegnum tíðina. Þá voru þeir Ágúst Bergsson, fyrrum skipstjóri á Lóðsinum og Bergvin Oddsson, útgerðarmaður Glófaxa, gerðir að heiðursfélögum. Björgvin Sigurjónsson, hönnuður Björgvinsbeltisins, var einnig heiðraður fyrir sinn hlut í bættu öryggi sjómanna.

Einar Björn Árnason, matreiðslumeistari, Guðmundur Huginn og Björgvin þór Rúnarsson, vélstjóri.

Þá afhenti Bergur Hilmari Snorrasyni, skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna, eina milljón króna að gjöf frá félaginu til tækjakaupa. Félaginu bárust svo fjölmargar gjafir og kveðjur.
Veislan sjálf var glæsileg, bæði var boðið upp á glæsilegan kvöldverð og vel heppnaða skemmtidagskrá. Fjörinu lauk þó ekki fyrr en undir morgun þegar stórsveitin SSSól sló síðasta taktinn á balli um nóttina.

Þessir voru heiðraðir: Bergur Páll Kristinsson, formaður, afhenti viðurkenningarnar. F.v. Bergur, Þórður Rafn Sigurðsson, Bergvin Oddson, Ágúst Bergsson og Grímur Karlsson.