Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1993/Nú er ráð að laga ljóð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
GUÐJÓN WEIHE:


NÚ ER RÁÐ AÐ LAGA LJÓÐ


Stafhenda aldýr.
Nú er ráð að laga ljóð,
lýsir bráðum dagsins glóð.
Skýru letri stuðla stef
stíga betri kvæða skref.
Skothenda.
Það er svona víst á víxl
vísur hylli njóta.
Láttu kona ljóðahvísl
létt um eyrun þjóta.
Stefjahrun.
Eins og forðum þessi þjóð
þráði háttalag.
Þú skalt meta lista ljóð
læra nýjan brag.
Fiðlulag.
Lokkasíða fljóðið fríða
fann sér víða.
Laus við kvíða, hátt til hlíða
herra blíða.
Ferskeytt, framhent.
Svona kona komdu því
kyndir yndi húmið.
Hátta máttu hérna í
hlýja nýja rúmið.
Dverghenda, fráhent, Ljúflingsháttur.
Styrkjum gaman, stögum saman
stefjaþátt.
Látum prýða ljóðasmíði,
ljúflingshátt.
Stafhenda, aldýr.
Nú er ráð að laga ljóð,
lýsir bráðum dagsins glóð.
Skýru letri stuðla stef,
stíga betri kvæðaskref.
Oddhenda, aldýr.
Byrjum þáttinn, hefjum hátt
hörpusláttinn ljóða.
Meðan náttar kveðjum kátt,
kyrjum háttinn góða.
Skothenda.
Það er svona víst á víxl
vísur hylli njóta.
Láttu kona ljóða hvísl
létt um eyrun þjóta.
Dverghend, bragarrós.
Hraðar mær á hljómastundu
hjartað slær.
Komdu nær því létt í lundu
ljóðið hlær.
Vökunótt.
Öðrum bundin vaka verð
vandast bragahljóðin.
Meðan tefur textagerð
tínast bestu ljóðin.
Í janúar á þessu ári varð borgfirskur hestamaður hundrað ára.
Lánið hefur langa ævi
leikið við þann hestamann.
Það vildi ég að guð mér gæfi
að geta riðið eins og hann.