Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985/ Limrur Hlymreks á sextugu

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Limrur Hlymreks á sextugu


Í formála að kverinu „Hlymrek á sextugu“ eftir Jóhann S. Hannesson, fyrrverandi skólameistara á Laugarvatni, segir:
Í þessu kveri er líkt eftir bragarhætti sem á uppruna sinn í enskri tungu og heitir þar limerick. Limerick heitir einnig borg og hérað á Írlandi; þar kölluðu norrænir menn Hlymrek.
Á íslensku var bragarhátturinn nafnlaus þegar elsta vísan í kverinu var send Kristjáni Karlssyni í skiptum fyrir aðra eins vestur á Kyrrahafsströnd. En nær aldarfjórðungi síðar gaf Þorsteinn Valdimarsson honum nafn, sem kunnugt er, og kallaði limru. Merkilegt má heita, að svo ágætt skáld og innilega ljóðrænt sem Þorsteinn skyldi ryðja limrunni til rúms í íslenskri tungu. Limran fælist skáldskap og fussar við ljóðrænu.

    Að uppruna erum við norsk
    að innræti meinleg og sposk,
    en langt fram í ættir
    minna útlit og hættir
    á ýsu og steinbít og þorsk.
    Í Seley fannst sjórekinn háfur;
    menn sögðu þar strax „Þetta er máfur.“
    Þeir trúa í blindni
    á frumleik og fyndni
    en fordæma hagnýtar gáfur.
    Að huga ekki að náungans högum
    né hlusta eftir illgjörnum sögum                     
    lýsir áhugaskorti
    á íslensku sporti
    og ætti að bannast með lögum.
    Það er ekki andskotalaust
    hvað undarlegt fólk er í haust;      
    jafnvel biskupinn kvað
    sjást með klámmyndablað
    og kyrjandi popplög við raust.
    Hverjum stjórnmálaflokki er svo farið      
    að hann forðast að taka af skarið:      
    spurð hvað milljón sé stór
    svarar miðstjórn í kór:
    „Það er misjafnt. Hver biður um svarið?“
    „Það er aumingi austur í Vík
    sem á ekki heillega flík.“ 
    „Hvernig má þetta vera?
    Þar er mikið að gera
    og meðaltalsfjölskyldan rík!“
    Í YFIRSETU
    Eg hef óbeit og andstyggð á prófunum      
    sem orku- og vitsmunasóunum.
    En hitt væri gaman
    að safnast hér saman
    og syngja og klappa með lófunum.
    Það er barnafólk suður á Bökkum,
    uppi á Brekku er allt fullt af krökkum.
    en niðri á Eyri
    er auðlegð meiri
    og ófrjóvgi tekið með þökkum.
    Veistu af hverju eg er svona sprækur      
    og andi minn tær eins og lækur
    og hugsunin klár
    eftir öll þessi ár?
    Það er af því að eg les ekki bækur.