Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1984/ Bjarganir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Bjarganir


Björgun úr höfninni 25. júní 1983
Ólafur Guðmundsson Brekastíg 20 Vm. og Garðar Ásbjörnsson, Illugagötu 10 Vm., björguðu Erlingi Stefánssyni Sólhlíð 2 Vm., upp úr höfninni við Nausthamarsbryggju. Hann var allþjakaður en náði sér brátt.
Björgun úr höfninni 10. mars 1984
Guðmundur Bjarnason, Heiðvangi 13 Hellu féll í sjóinn, er hann hugðist fara um borð í m/b Guðmund RE þar sem báturinn lá við Nausthamarsbryggju. Jón Björn Vilhjálmsson skipstjóri á m/b Gígju bjargaði manninum upp.
Þriðjudaginn 1. október 1983
Fórst m/s Kampen 22 sjómílur SSA af Kötlutanga. 13 manna áhöfn var á skipinu, en 7 þeirra létust. Þeir sem af komust og lík hinna látnu voru flutt til Vestmannaeyja af eftirtöldum bátum: Kópsnes, Skúmur, Dala-Rafn, Skarfur, Kópur. Hjálparsveit skáta, Björgunarfélagið og lögregla unnu að því að flytja skipbrotsmennina til Sjúkrahússins.
M/s Kampen var frá Hamborg, eigendur Sehulz og Klemensen Hamborg.

Tækjaliðið í Fiskiðjunni. Talið frá vinstri; Óþekktur, Ísleifur Jónsson, Guðmar Tómasson, Einar Elíasson, Sigurður Jónsson, Símon Kristjánsson, Hans Ólafsson, Eiríkur Sigurjónsson, Benedikt Frímannsson og Helgi Egilsson.