Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1974/ Vélbáturinn Gunnar Jónsson VE 500

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Vélbáturinn GUNNAR JÓNSSON VE 500


Fengsælan þig gæfan geri,
Guð þig blessi hverja stund,
formannshöndum forsjá veri
og farmennskunnar djörfu lund,

Haltu stefnu stillt á bárum,
er stóru veðrin bregða á leik
og sannast lát með aldri og árum,
að öll þin bygging hvergi er veik.

Með Guð i hjarta, Guð i stafni,
Gunnar, sigldu um höfin blá,
í öllum veðrum, Alvalds nafni,
þér örugglega farnast þá,

Þorsteinn L. Jónsson.