Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1971/ Maðurinn á Ströndinni
Fara í flakk
Fara í leit
- Á ströndinni aleinn stóð hann,.
- starði í þögn á sæinn..
- Litlir gárar sér léku.
- léttir við hreinan blæinn..
- Halurinn aldni horfði .
- í huga til liðinna ára,.
- er fleyið hans flesta daga.
- faðmaði hafsins bára.
- Það kviknar í augunum eldur,
- er endurminningar vakna.
- Um vanga slær björtu brosi,
- er böndin af atvikum rakna.
- - Hann minnist, er ungur sér undi
- alla daga við sjóinn
- og heill var hugurinn bundinn
- við hafið, er pabbi var róinn.
- Hann man: Hversu mannshugur geymir
- mikið frá liðnum árum
- og löngu síðar fæst litið
- leiftur af gleði og tárum.
- í minningum skiptast á skúrir
- og skin, sem á stærra sporið,
- erfiðleikarnir efldu
- andans og manndómsþorið.
- Hann man ennþá ferðina fyrstu,
- er fór hann með pabba í róður,
- Hve bátnum vaggaði báran,
- Hve blíður var hennar óður.
- Hve sá hann á söltum legi
- sjóndeildarhringinn stækka.
- Hve þóttist hann þennan daginn
- þroskast sjálfur og hækka.
- Árstíðir örhratt líða.
- í ártugi saman renna.
- Eldar frá starfsins arni
- áfram lifa og brenna.
- Hans störf voru unnin á öldum
- Ægis um langan tíma,
- þar reyndi á huga sem hendur
- hörð var stundum sú glíma.
- Þar fann hann lífið þó fegurst,
- þess fylling og æðasláttinn.
- Þar lærði 'ann að skynja skýrast
- Skaparans undramáttinn:
- í hvæsandi brimsins boðum,
- í bárunnar létta óði,
- í ofsaveðursins orgi
- og andvarans þýða ljóði.
- Á ströndinni aleinn stóð hann,.
- Er sindrandi leifturlogar
- liðu um himingeiminn
- og stjörnublysin brunnu
- birtunni dreifðu um heiminn,
- fegurðin hjartað fyllti
- fögnuði' og lotning skærri.
- Þá vaknaði örugg vissan,
- að var honum Drottinn nærri.
- Er sindrandi leifturlogar
- Næturtjöldin svo tóku
- að titra fyr' nýjum degi:
- Sólgeislar bjartir
- báru bjarma að jörð og legi.
- Leiftrandi logamyndir
- lágu um dal og ögur -
- fegurð þess finnur enginn
- að fullu við annars sögur.
- Næturtjöldin svo tóku
Vertíðarnótt við Vestmannaeyjahöfn
- Fegurð og friður ríkti
- á farmannsins brautu tíðum,
- en margoft þó reyndi á manndóm
- í myrkri og vetrarhríðum,
- þá dvaldi hugurinn heima
- því hún, sem að vakti löngum,
- á hamfarir hafs og vinda
- hlustar með tár á vöngum.
- Fegurð og friður ríkti
- Hann vissi að brennheitar bænir
- frá brjósti hennar þá stigu
- til hans, sem stormana stillir
- og stórsjói' er risu og hnigu.
- Öruggum huga hann einnig
- alföður hendinni treysti
- og fól sig og ástvini alla
- þess umsjón, er vanda hvern leysti
- Hann vissi að brennheitar bænir
- Óveðri slotar og aftur
- fer unaðarljómi um hafið.
- Allt, sem á undan var gengið
- í ómælisrúminu grafið.
- Farmanni hamingjan færir
- fögnuð hjá vinunum heima.
- Minning um alföður umsjón
- til æviloka mun geyma.
- Óveðri slotar og aftur
- Árstíðir örhratt líða,
- aldirnar framhjá renna.
- Eldar frá starfsins arni
- ennþá lifa og brenna.
- Ennþá er staðið á ströndu
- og starað í þögn á sæinn,
- er litlir gárar sér leika.
- léttir við hlýjan blæinn.
- Árstíðir örhratt líða,