Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1968/ Heiðraðir á sjómannadag 1968

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Heiðraðir á sjómannadaginn 1968


Heiðursskjöl og verðlaunabikarar sjómannadagsins 1967. Heiðursskjölin eru handmáluð og teiknuð af Guðjóni Ólafssyni frá Gíslholti.

Eftirtaldir aðilar fá heiðursskjöl sjómannadagsins í Vestmannaeyjum 1968.

Nýr fáni Vélstjórafélags Vestmannaeyja og ein af styrkjum stoðum félagsins.
Sjómenn heiðraðir á sjómannadaginn 1967 fyrir vel unnin störf, talið frá vinstri: Júlíus Snorrason frá Hlíðarenda, þekktur vélstjóri í Vestmannaeyjum; Guðmundur Helgason, Heiðardal, kunnur sjómaður og framámaður sjómannasamtakanna og formaður sjómannafélagsins Jötuns í mörg ár; Ólafur Vigfússon, Gíslholti, mikill sjósóknari og aflamaður í Eyjum, var lengst af formaður á m/b Skúla fógeta; yzt til hægri Páll Þorbjörnsson, fyrrum skipstjóri, sem hafði á hendi verðlaunaafhendingar sjómannadagsins.

Fyrir björgun úr sjávarháska:
Stefán Runólfsson, Adólf Óskarsson, Trausti Magnússon skipstjóri og skipshöfn hans á Andvara KE.

Aldraðir sjómenn fyrir vel unnin störf:
Tilnefndur af Verðanda:
Eiríkur Jónsson, Hásteinsvegi 41.
Tilnefndur af Vélstjórafélagi Vestmannaeyja:
Ögmundur Ólafsson frá Litla-Landi.
Tilnefndur af [[Sjómannafélagið Jötunn|Jötni:
Sigurjón Ingvarsson.
Ólafur Ólafsson á Létti er heiðraður fyrir vel unnin störf við Vestmannaeyjahöfn.