Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1958/ Ási í bæ: Í verum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
ÁSI Í BÆ:


Í VERUM


Gamanvísur með sínu lagi


1.
Áður var nóg af síld í sænum
sunnan frá Gerpi að Skagatá.
Þá var nú fjör í fiskibænum,
flogizt og sopið á.
Braskarar voru þá fljótir að fitna,
fengu stelipurnar meira en nóg —
nú er sko orðin öldin önnur,
ekki fæst bein úr sjó!
Gefi nú góðan byr
og glannaleg síldarköst,
svo koppurinn fyllist
og kapteinninn tryllist
og kraumi í blárri röst.
Svo höldum við hafnar til
og heilsum með gleðibrag
þeim lífsglöðu meyjum
sem löngum við þreyjum
og létta okkur strangan dag.
2.
En léleg var híran, þótt lengi við biðum
lukkunnar stóru norður þar, —
en svellandi er úti á síldarmiðum,
er sólin hnígur í mar.
Drekka þar saman rennandi rauðvín
ránardætur og himinský —
Í bröggunum slelpurnar buðu uppá kaffi
— og brjóstin sín ung og hlý.
Gefi nú góðan byr
— æ, gráttu ekki ástin mín,
þó ég sé á förum
frá freistandi vörum;
í fjarska ég minnist þín.
Svo siglum við suður á land,
því síldin er komin þar. —
Og braskarar mætast,
og bytturnar kætast
og berjast, um stelpurnar.
3.
Í Grindavík drukkum við daga og nætur,
ef dokað var inni og veður höst.
Þar voru heiðvirðar heimasætur,
hræddar við eftirköst.
En fjalladöggin sú fagurbláa
fýldu hjörtunum kom í lag —
og gellandi rakkarnir gáfu til kynna
göfugan sveitarbrag.
Gefi nú góðan byr
og gráðuga síld í nótt,
svo koppurinn fyllist
og kapteinninn tryllist
og kokksa dreymi rótt.
Svo höldum við hafnar til
hreistraðir uppfyrir haus.
Þótt sjóði á keipum
og syngi í reipum,
er sjóarinn óttalaus.
4.
Að síðustu lentum við út í Eyjar,
oft er þar garri og sjávarrót.
Þar eru glettnar glæsimeyjar,
sem gefa okkur undir fót.
Um eftirköstin þær aldrei hugsa,
því ástin er þeim hjartans geim.
Fyrst stígum við dansinn stundarlengi
og stingum svo af með þeim.
Gefi nú góðan byr,
af glitrandi þorski nóg,
svo koppurinn fyllist
og kapteinninn tryllist
og kraumi í grænum sjó.
Svo höldum við hafnar til
og heilsum með gleðibrag
þeim lífsglöðu meyjum,
já, lífinu í Eyjum,
sem lifum við nú í dag.
5.
Úr suðrinu fljúga sólskinsdagar.
Sumarið heilsar um strönd og ver.
Lifna þá aftur landsins hagar
og lífið í brjósti mér.
Ungir við leitum æfintýra
á ólgandi veraldarrútunni,
þar til að endingu loks við lendum
á lífstíðarskútunni!
Gefi þá góðan byr
og glannaleg ástarköst,
þó kerlingin argi
og krakkarnir gargi
og kraumi í hjónabandsröst.
Stýrum því strikið inn
og stefnum til betri hags,
þótt sjóði á keipum
og syngi í reipum
til síðasta lokadags.