Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1954/ Sjómannavísur
Fara í flakk
Fara í leit
- Eyjakarlar út úr vör
- öldufalda kljúfa -skör.
- Unn þó svelli yfir knör,
- ei þeir kalla svaðilför.
- Eyjakarlar út úr vör
- Flóðsins- breiðu flatirnar,
- fríðir skeiða sægammar,
- afla skreiðar allstaðar
- út um veiðistöðvarnar.
- Flóðsins- breiðu flatirnar,
- Brjóta föll á byrðingum,
- brims í sköllum válegum.
- Rísa í öllum áttunum,
- ægisfjöll á miðunum.
- Brjóta föll á byrðingum,
- Klónni slakar enginn á,
- afla rakar hver sem má,
- heima er flakað Eyjum á,
- allar vakað nætur þá.
- Klónni slakar enginn á,
- Hækkar skreiðar hlaði hver,
- heldur greiðast vandi fer.
- Ekki leiðist ítum hér,
- engin neyð að dyrum ber.
- Hækkar skreiðar hlaði hver,
- Oft er regn í Eyjunum,
- aflafregn á skotspónum,
- fýla megn á fiskstöðvum,
- fullur þegn í steininum.
- Oft er regn í Eyjunum,
- Oft er kátt í Eyjunum,
- eldað grátt á dansleikjum,
- eftir slátt frá illvígum,
- auga blátt í drykkfelldum.
- Oft er kátt í Eyjunum,
- Oft er rok í Eyjunum,
- aflamok á páskunum,
- ekkert dok á aðgerðum,
- allt að lokadeginum.
- Oft er rok í Eyjunum,
- Lokakveldið kempurnar
- kætast heldur vígreifar.
- Geisar eldur gleðinnar,
- gegnum veldi Bakkusar.
- Lokakveldið kempurnar
- Kvæðamóður orðinn er,
- aumur slóði, þvi er ver,
- þar með ljóð á braut ég ber.
- blíðu fljóðin þakki mér.
- Kvæðamóður orðinn er,