Sigurður Gunnarsson (skipstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður Gunnarsson.

Sigurður Gunnarsson frá Garðshorni í Flatey á Skjálfanda, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður fæddist þar 27. september 1928 og lést 20. september 2010 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hans voru Gunnar Guðnason frá Nýjabæ í Flatey, útvegsbóndi, f. 24. ágúst 1899, d. 13. nóvember 1940, og kona hans Kristín Gísladóttir frá Brekku í Hvalvatnsfirði, S.-Þing., húsfreyja, f. 29. mars 1902, d. 12. desember 1997.

Sigurður var með foreldrum sínum í æsku.
Hann hóf nám í Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1952, lauk prófi 1954.
Sigurður stundaði sjómennsku frá unglingsárum, í Flatey, á síldveiðum og togurum. Hann fluttist til Eyja eftir nám 1954, var sjómaður, skipstjóri og útgerðarmaður. Frá 1975 vann hann hjá Framleiðslueftirliti sjávarafurða.
Þau Jóna giftu sig 1956, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Hólagötu 21, á Brimhólabraut 33, en síðast við Boðaslóð 12.
Sigurður lést 2010 og Jóna 2022.

I. Kona Sigurðar, (21. janúar 1956), var Jóna Kristjana Guðmundsdóttir frá Túnsbergi við Vesturveg 22, húsfreyja, verslunarmaður, starfsmaður Íþróttamiðstöðvarinnar, f. 31. mars 1931, d. 18. nóvember 2022.
Börn þeirra:
1. Helga Sigurðardóttir, f. 21. júní 1957. Maður hennar Ásgeir Sverrisson.
2. Kristín Sigurðardóttir, f. 19. nóvember 1959. Maður hennar Magnús Gunnar Þorsteinsson.
3. Lilja Sigurðardóttir, f. 9. maí 1965. Maður hennar Guðmundur Viðar Adolfsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.