Sigurður Frans Þráinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Frans Þráinsson, sjómaður fæddist 1. júlí 1966.
Foreldrar hans Þráinn Sigurðsson, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 9. ágúst1946, d. 20. júlí 2017, og kona hans Ingunn Elín Hróbjartsdóttir, húsfreyja, f. 6. desember 1949.

Börn Elínar og Þráins:
1. Sigurður Frans Þráinsson, f. 1. júlí 1966.
2. Hallgrímur Þráinsson, f. 25. júlí 1967.
3. Jóhann Helgi Þráinsson, f. 22. febrúar 1970.

Þau Jóhanna hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Bröttugötu 13. Þau skildu.
Þau Hulda hófu sambúð, eignuðust ekki börn. Þau skildu.
Sigurður býr við Foldahraun 41f.

I. Fyrrum sambúðarkona Sigurðar er Jóhanna Svanborg Jónsdóttir úr Hrútafirði, húsfreyja, f. 12. maí 1961. Foreldrar hennar Jón Jónsson, bóndi, f. 25. febrúar 1920, d. 13. júlí 1996, og kona hans Lára Guðlaug Pálsdóttir, húsfreyja, f. 31. ágúst 1933, d. 31. ágúst 1993.
Börn þeirra:
1. Ingunn Silja Sigurðardóttir, f. 21. ágúst 1996.
2. Þráinn Sigurðsson, f. 20. júní 2001.

II. Fyrrum sambúðarkona Sigurðar er Hulda Pétursdóttir frá Ólafsvík, húsfreyja, skrifstofumaður, f. 13. júlí 1966. Foreldrar hennar Pétur Jóhannes Bogason, f. 26. desember 1949, og Kristjana Huldudóttir, f. 25. apríl 1950.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.