Sigrún Jónsdóttir (Áshamri)
Sigrún Jónsdóttir frá Áshamri 75, húsfreyja, verslunarmaður fæddist 15. apríl 1975.
Foreldrar hennar Jón Friðrik Kjartansson, f. 14. ágúst 1953, og sambúðarkona hans Hrönn Ágústsdóttir frá Hólagötu 8, húsfreyja, f. 2. október 1954.
Sigrún var með móður sinni. Hún er húsfreyja, en vinnur dálítið verslunarstörf.
Þau Þórður Norðfjörð hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Elvar Freyr giftu sig, hafa eignast eitt barn. Þau búa við Höfðaveg 11b.
I. Sambúðarmaður Sigrúnar, skildu, er Þórður Norðfjörð Jóhannsson, matreiðslumaður í Rvk, f. 21. apríl 1973 í Rvk.
Börn þeirra:
1. Jóhann Ingi Norðfjörð Þórðarson, f. 11. mars 1994.
2. Sigurður Þór Norðfjörð Þórðarson, f. 29. júlí 1996.
II. Maður Sigrúnar er Elvar Freyr Kristinsson rafeindavirki, f. 7. október 1974.
Barn þeirra:
3. Ásta Hrönn Elvarsdóttir, f. 19. ágúst 2007.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Krossaætt. Björn Pétursson. Útgefandi Mál og mynd 1998.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.