Sif Gylfadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sif Gylfadóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, verkakona fæddist 28. september 1963 í Rvk.
Foreldrar hennar Gylfi Sigurjónsson, loftskeytamaður, bankastarfsmaður, skrifstofustjóri, f. 8. desember 1939, og kona hans Lilja Þorsteinsdóttir, húsfreyja, f. 7. júlí 1940.

Börn Lilju og Gylfa:
1. Sif Gylfadóttir bankastarfsmaður, verkakona, f. 28. september 1963. Fyrrum maður hennar Oddur Kristinn Guðmundsson.
2. Hlíf Gylfadóttir mannfræðingur, kennari, f. 10. febrúar 1966.
Barn Lilju og fósturbarn Gylfa:
3. Emilía Davíðsdóttir, f. 5. apríl 1958.

Þau Oddur Kristinn giftu sig, eignuðust þrjú börn, en skildu. Sif býr á Áshamri í Eyjum.

I. Maður Sifjar, skildu, er Oddur Kristinn Guðmundsson frá Ketilsstöðum í Hörðudal, Dalas., sjómaður, f. 6. september 1966. Foreldrar hans voru Þórdís Oddsdóttir húsfreyja, f. 22. október 1924 að Hvarfsdal á Skarðstönd í Dalasýslu, d. 19. desember 2013, og sambúðarmaður hennar Guðmundur Jónsson frá Mjóabóli í Haukadal, Dalas., bóndi, f. 27. apríl 1026, d. 21. nóvember 2007.
Börn þeirra:
1. Ósk Oddsdóttir, f. 5. apríl 1990 í Eyjum.
2. Elías Oddsson, f. 17. apríl 1992 í Eyjum.
3. Birta Oddsdóttir, f. 30. júlí 1998 í Rvk.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.
  • Niðjatal Elínar Jónsdóttur og Þórarins Árnasonar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.