Sæþór Orri Guðjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sæþór Orri Guðjónsson, markaðshagfræðingur fæddist 27. nóvember 1979 í Eyjum.
Foreldrar hans Guðjón Hjörleifsson, fyrrv. bæjarstjóri, f. 18. júní 1955, og kona hans Rósa Elísabet Guðjónsdóttir, húsfreyja, stuðningsfulltrúi, f. 26. júlí 1959.

Sæþór lærði hagfræði í Danmörku og lauk námi 2007.
Hann rekur eigið fyrirtæki í Svíþjóð.
Þau Karen Inga giftu sig 2004, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Vallargötu 12, fluttu til Svíþjóðar.

I. Kona Sæþórs, (11. apríl 2004) er Karen Inga Ólafsdóttir, húsfreyja, íþróttafræðingur, þjálfari, nuddari, f. 15. júní 1976.
Börn þeirra:
1. Birta Sól Sæþórsdóttir, f. 6. nóvember 2001. Hún býr í Eyjum.
2. Lúkas Orri Sæþórsson, f. 2. júní 2005. Hann býr í Svíþjóð.
3. Alex Ingi Sæþórsson, f. 5. september 2007. Hann býr í Svíþjóð.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.