Rósa Jóhanna Sigríður Jónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Rósa Jóhanna Sigríður Jónsdóttir frá Brandshúsi húsfreyja í Spanish Fork í Utah fæddist 15. janúar 1880 í Brandshúsi og lést 17. apríl 1954 í Spanish Fork.
Foreldrar hennar voru Jón Hreinsson frá Batavíu bátsformaður, síðar kaupmaður og forstjóri í Spanish Fork, f. 21. janúar 1858 í Brandshúsi, d. 7. október 1948 í Castel Gate í Utah, og fyrri kona hans Kristín Guðmundsdóttir húsfreyja frá Ömpuhjalli, f. 19. október 1854, d. 26. apríl 1910 í Spanish Fork.

Börn Kristínar og Jóns:
1. Rósa Jóhanna Sigríður Jónsdóttir, f. 15. janúar 1880 í Brandshúsi. Hún fór til Utah með foreldrum sínum, lést 17. apríl 1954. Maður hennar var Henry Franklin Hampson.
2. Jóhann Hreinn Jónsson, f. 18. júní 1882, d. 8. júlí 1882 úr mislingum.
3. Sigríður Guðmundína Jónsdóttir, f. 27. júlí 1883, d. 9. apríl 1885.
4. Jóhann Sigurmundur Jónsson, f. 21. ágúst 1887. Fór til Vesturheims með foreldrum sínum, lést 21. október 1964 í Murray í Utah.
5. Jón Kristinn Jónsson, f. 11. júlí 1891. Hann fór til Spanish Fork í Utah 1892, d. 30. nóvember 1934.

Rósa var með foreldrum sínum, fór með þeim til Vesturheims 1892 frá Batavíu.
Þau Henry giftu sig 1910.

I. Maður Rósu, (20. apríl 1910), var Henry Franklin Hampson, f. 13. janúar 1884 í Tahyer í Kansas, d. 7. nóvember 1916.
Börn ókunn.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.