Margrete Elenore Bech (Garðinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Margrete Elenore Bech, fædd Elleby, húsfreyja í Kornhól, fæddist 1808.
Foreldrar hennar voru Esper Christian Ellebye bóndi og lögreglumaður, f. 1774, d. 18. febrúar 1839, og kona hans Margaret Eleanor fædd Sode, húsfreyja, f. 1785, d. 8. nóvember 1814.

Hún fluttist til Eyja 1835 og giftist Sören 1836. Þau dvöldu í Eyjum til ársins 1843.
Margrete ól 7 börn í Eyjum, eitt fæddist andvana og fjögur dóu í bernsku, þar af a.m.k. eitt úr ginklofa.
Þau hjónin fluttust til Danmerkur 1843 með tvö börn.

Maður Margrete var, (32. maí 1835), Sören Ludvig Bech verslunarmaður, (assistent) í Garðinum.
Börn þeirra hér voru:
1. Andvana fætt meybarn 20. mars 1836.
2. Lovise Christine Teresia Bech, f. 10. maí 1837, á lífi 1843.
3. Ludvig Hendrick Thorvald, f. 4. desember 1838, d. 13. desember 1838 úr ginklofa.
4. E. Ludvig Hákon Bech, f. 28. október 1839, fór með foreldrum sínum ti Kaupmannahafnar 1843.
5. Eleonore Henrike, f. 2. nóvember 1840, d. 7. nóvember 1840 úr ginklofa.
6. Carl Hendrik, f. 15. apríl 1842, d. 1. júní 1842.
7. Níels Hendrik Thorkelin, f. 6. maí 1843, ekki á skrá við brottför fjölskyldu 1843, líklega dáið ungur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.