Maja litla

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Maja litla (Þjóðhátíðarlag 1956)

Lag og texti: Ási í Bæ


Á gallabuxum og gúmmískóm

hún gengur árla dags

Í fiskiverið frísk og kát

og flakar til sólarlags.


Í stöðinni er hún stúlkan sú

er strákana heillar mest

og svo er hún líka við fiskinn fín

hún flakar allra best


Hún Mæja litla með ljósa hárið

litfríð er hún á kinn.

Og nú er hún komin á átjánda árið

og augum þau drottinn minn.


Og þegar hún brosir og blikkar þá

blossa hjörtun af ástarþrá.

Og alveg hún dansar og alveg hún hlær

eins og sumarblær.

Hún Mæja litla með ljósa hárið

líkust er álfamær