Magnús Guðmundsson (skipstjóri)
Fara í flakk
Fara í leit
Magnús Guðmundsson frá Þorlákshöfn, stýrimaður, skipstjóri um skeið á Gjafari VE, framkvæmdastjóri, fæddist 18. júlí 1966.
Foreldrar hans Guðmundur Haukur Magnússon, f. 20. desember 1944, og Jóna Guðbjörg Sigursteinsdóttir, f. 22. maí 1945.
Þau Sigrún giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Áshamri 63 og Hrauntúni 29. Þau búa í Garðabæ.
I. Kona Magnúsar er Sigrún Ágústsdóttir húsfreyja, leikskólakennari, f. 11. apríl 1967.
Börn þeirra:
1. Inga Hrund Magnúsdóttir, f. 13. desember 1988 í Eyjum.
2. Guðrún Dís Magnúsdóttir, f. 17. ágúst 1995 í Eyjum.
3. Kolbrún Sara Magnúsdóttir, f. 10. apríl 1997.
4. Ásdís Eva Magnúsdóttir, f. 14. nóvember 2000.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sigrún.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.