Málþing um Blik 26.mars 2011
Fara í flakk
Fara í leit
Blik. Fjársjóður á heimaslóð
Málþing til heiðurs Þorsteini Þ. Víglundssyni laugardaginn 26. mars 2011.
Málþing í Einarsstofu í Safnahúsinu laugardaginn 26. mars, kl. 14-16. Haldið í tilefni af því að í mars 2011 eru liðin 75 ár frá því Blik kom fyrst út.
14:00-15:00
- Hjónanna Ingigerðar Jóhannsdóttur og Þorsteins Víglundssonar minnst í samantekt Víglundar Þorsteinssonar. Lesari Kári Bjarnason.
- Hugleiðingar Guðmundar G. Hagalíns um Blik. Lesari Helga Hallbergsdóttir.
- Þorsteinn I. Sigfússon prófessor og forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands rabbar um afa sinn og ömmu.
- Frosti Gíslason verkefnisstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands fjallar um Blik á Heimaslóð.
- Jóhanna Ýr Jónsdóttir safnstjóri Byggðasafns Vestmannaaeyja ræðir um endurbætur á safninu.
15:00-15:20
Kaffi
15:20-16:00
Pallborð. Þorsteinn og Blik.
- Þátttakendur í pallborði: Ragnar Óskarsson, Arnar Sigurmundsson, Trausti Eyjólfsson, Víglundur Þorsteinsson og Þorsteinn I. Sigfússon. Enda þótt ofangreindir mæti sérstaklega er allir þeir sem vilja deila sögum sínum á staðnum hvattir til þess.
- Valin ljóð eftir Þorstein.
Að lokinni hefðbundinni dagskrá gefst þátttakendum færi á að ganga að Goðasteini sem og að sitja áfram í Safnahúsi og horfa á valdar myndir úr Bliki í 75 ár rúlla á sjónvarpsskjá (ca. 25 mín.).
- Kynnir: Kári Bjarnason, forstöðumaður Bókasafns Vestmannaeyja
Dagskráin er liður í röð menningarviðburða Söguseturs 1627 og Bókasafns Vestmannaeyja sem kostuð er af Menningarráði Suðurlands.
Allir hjartanlega velkomnir.
Endilega skoðið Blik á Heimaslóð