Lára Valsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Lára Valsdóttir.

Lára Valsdóttir MSc-næringarfræðingur, starfsmaður á Lsp í Rvk fæddist 9. ágúst 1983 í Eyjum og lést 15. apríl 2013.
Foreldrar hennar Védís Gunnarsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 6. apríl 1951, og Valur Magnússon sjómaður, f. 13. febrúar 1954.

Börn Védísar og Vals:
1. Eva Valsdóttir, húsfreyja, f. 21. janúar 1976. Maður hennar Bjarni Valur Einarsson.
2. Anna Valsdóttir, f. 4. október 1977. Maður hennar Valdimar Helgi Pétursson.
3. Lára Valsdóttir, næringarfræðingur í Rvk, f. 9. ágúst 1983, d. 15. apríl 2013.

Lára var ógift og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.