Kristjana G. Einarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristjana Geirlaug Einarsdóttir frá Ytri-Sólheimum, húsfreyja í Brautarholti fæddist 29. júní 1919 og lést 2. febrúar 2002.
Foreldrar hennar voru Einar Einarsson bóndi á Ytri-Sólheimum, f. 12. september 1889 á Raufarfelli u. Eyjafjöllum, d. 9. september 1955, og kona hans Ólöf Einarsdóttir húsfreyja, f. 8. janúar 1890 á Ytri-Sólheimum, d. 22. ágúst 1976.

Kristjana var með foreldrum sínum til 1941, en fluttist þá til Eyja. Þau Adolf bjuggu í Brautarholti 1942.
Þau fluttust að Ytri-Sólheimum 1944, bjuggu þar til 1950, er þau fluttust að Önundarhorni u. Eyjafjöllum og bjuggu þar síðan.
Adolf lést 1987 og Kristjana 2002.

Maður Kristjönu var Adolf Andersen bóndi, f. 5. desember 1913, d. 20. september 1987.
Börn þeirra hér:
1. Óli Einar Andersen, f. 7. mars 1941 á Ytri-Sólheimum.
2. Jón Már Adolfsson trésmíðameistari á Hellu, f. 19. maí 1942 í Brautarholti.
3. Svanlaug Adolfsdóttir, f. 17. júlí 1944 á Ytri-Sólheimum.
4. Guðmundur Marínó Adolfsson Andersen, f. 18. október 1945 á Ytri-Sólheimun.
5. Guðmundur Helgi Adolfsson, f. 18. febrúar 1949.
6. Guðni Adolfsson, f. 29. apríl 1953.
7. Sigrún Adolfsdóttir, f. 28. ágúst 1954.
8. Erna Adolfsdóttir, f. 11. september 1955.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.