Kristján Linnet (bæjarfógeti)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search
Kristján Linnet, bæjarfógeti.
Kristján Linnet bæjarfógeti, kona hans Jóhanna E.Ó.S. Júlíusdóttir og börn: Talið frá vinstri Hans Ragnar Linnet, Henrik Adolf Linnet, Margrét Mjallhvít (dóttir Jóhönnu Júlíusdóttur og fyrri manns hennar Jóhanns Péturssonar sjómanns, kjördóttir Kristjáns), Anna Kristín Linnet, Elísabet Lilja Linnet, Stefán Karl Linnet, Bjarni Eggert Eyjólfur Linnet. Talið er að myndin sé tekin 1939.

Kristján Linnet var bæjarfógeti í Vestmannaeyjum frá 1924 til ársins 1940. Kristján var fæddur 1. febrúar 1881. Foreldrar hans voru Hans Dithlev Linnet bókhaldari í Hafnarfirði og Gróa Jónsdóttir frá Vallarhúsi í Grindavík.

Kristján varð stúdent í Reykjavík árið 1899 og cand. juris frá Kaupmannahafnarháskóla 1907. Hann var settur lögreglustjóri á Siglufirði sumrin 1909 og 1910 og síðar settur sýslumaður í Dalasýslu 1915 og seinna meir í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu frá 1917 til ársins 1918. Kristján var skipaður sýslumaður í Skagafjarðarsýslu 1918. Var síðan settur bæjarfógeti í Vestmannaeyjum 1924.

Kona hans var Jóhanna Eyjólfa Ólafía Seymour Júlíusdóttir og áttu þau sex börn. Kristján Linnet lét byggja húsið Tindastól, við Sólhlíð 17, til að nota sem bústað bæjarfógeta og voru þar einnig lengi skrifstofur bæjarfógetans í Vestmannaeyjum.


Myndir


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
  • Íslenzkar æviskrár.