Kristín Símonardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Símonardóttir frá Hellisfirði í S.-Múl., húsfreyja í Einarshöfn við Kirkjuveg 15 fæddist 12. september 1898 á Kirkjubóli í Norðfirði og lést 20. mars 1984 í Borås í Svíþjóð, þar sem Soffía dóttir hennar bjó.
Foreldrar hennar voru Símon Jónsson bóndi á Kirkjubóli í Norðfirði og í Hellisfirði, f. 5. október 1856, d. 16. febrúar 1934, og kona hans Sesselja Sveinsdóttir húsfreyja, f. 21. febrúar 1863, d. 2. desember 1909.

Kristín var með foreldrum sínum á Kirkjubóli 1901, í Hellisfirði 1910, flutti til Eyja 1920, var skráð hjú á Jaðri við Vestmannabraut 6 á því ári, en var á Vífilsstöðum.
Þau Axel giftu sig 1922, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Einarshöfn við Kirkjuveg 15a. Þar voru börn þeirra Soffía og Oddgeir. Þau fluttu úr Eyjum til Reykjavíkur 1930.
Axel lést 1974.
Kristín fluttir til Soffíu dóttur sinnar í Borås í Svíþjóð. Þar lést hún 1984.

I. Maður Kristínar, (9. desember 1922), var Axel Theodór Einarsson málari, listmálari frá Garðhúsum við Kirkjuveg 14, f. 16. nóvember 1896, d. 30. apríl 1974.
Börn þeirra:
1. Soffía Vigmo, bjó í Borås í Svíþjóð, f. 24. apríl 1923. Maður hennar Josef Vigmo. Dóttir hennar Silvi háskólakennari í Gautaborg. Silvi fjallaði um list Axels afa síns á árinu 2011 í Eyjum.
2. Oddgeir Axelsson bjó síðast á Rauðarárstíg 7 í Reykjavík, f. 19. febrúar 1925, d. 13. febrúar 1999.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.