Kristín Guðnadóttir (Skálakoti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Guðnadóttir húsfreyja í Skálakoti u. Eyjafjöllum fæddist 1766 og lést 17. júní 1839.
Móðir hennar var Guðrún Lafranzdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1746, d. 4. mars 1816 í Skálakoti.
Faðir hennar var talinn vera Hans Klog verslunarstjóri.

Hans Klog kom Kristínu í fóstur til sr. Páls Sigurðssonar í Holti u. Eyjafjöllum. Kristín var húsfreyja í Skálakoti 1792 og enn 1835. Hún lést 1839.
Maður Kristínar, (18. júlí 1790), var Sighvatur Einarsson bóndi í Skálakoti 1801.
Börn þeirra hér:
1. Einar Sighvatsson, f. 19. júní 1792.
2. Steinunn Sighvatsdóttir, f. 24. janúar 1795.
3. Jórunn Sighvatsdóttir, f. 19. október 1797.
4. Kristín Sighvatsdóttir, f. 9. ágúst 1799.
5. Kristín Sighvatsdóttir, f. 9. októer 1807.

Meðal barna þeirra Kristínar og Sighvats var Einar Sighvatsson bóndi faðir Jóns Einarssonar bónda í Ysta-Skála, síðar í Hlaðbæ, föður Halldóru Jónsdóttur húsfreyju í Hlaðbæ, konu Bjarna Einarssonar bónda og útvegsmanns.
Þau voru foreldrar Björns Bjarnasonar vélstjóra í Bólstaðarhlíð, Sigurðar Bjarnasonar skipstjóra í Svanhól og Ingibjörg Bjarnadóttir húsfreyja í Varmahlíð u. Eyjafjöllum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.