11.675
breytingar
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 56: | Lína 56: | ||
Þegar róið var, sátu menn við árar sitt hvoru megin á þóftunum, þegar fallið var á. | Þegar róið var, sátu menn við árar sitt hvoru megin á þóftunum, þegar fallið var á. | ||
==Verkaskipting háseta == | |||
Öllum hásetum var skipað á sinn stað á skipinu. Í því sambandi voru þeir oft kenndir við rúmin sín í skipinu, t.d. framá- eða barka-menn, andófsmenn, fyrirrúms-, miðskips- og austurrúmsmenn, og svo að síðustu bita- og miðskutsmenn. Allir þessir menn höfðu sérstökum störfum að gegna á skipinu. Andófsmenn áttu alltaf að andæfa undir færum. Fyrirrúmsmenn lögðu næstir út árar í andófi. Einnig bar þeim að ausa, ef austurrúmsmaður hafði ekki við. | |||
Þá kom röðin næst að austurrúmsmönnunum, og þyrftu allir að andæfa, urðu miðskipsmenn að leggja út. Þá var það kallað „allra manna andóf“. Þeir af skipshöfninni, sem skipuðu skiprúm fyrir framan andófsrúm og aftan austurrúm, voru líka oft kallaðir yfirskipsmenn. | |||
Miðskipsmenn áttu að ýta skipi og fara síðastir upp í skip. Þeim bar einnig að taka á móti, þegar skipið lenti. Þá komu bitamenn í þeirra stað og réru í þeirra rúmi. | |||
Miðskipsmenn áttu að reisa siglutrén, - „ganga undir möstrum“, eins og það var kallað - þegar sigla átti. Eins skyldu þeir taka á móti siglutrjánum, þegar þau voru felld. | |||
Siglutrén voru lögð miðskips, Fremsta framá-manni bar að sjá um klífi, t. d. rifa hann og draga upp. Hann var líka stundum kallaður húmborumaður. | |||
Barkamenn sáu um framseglið. Skutmenn og þeir, sem um róðurinn voru, sáu um afturseglið. | |||
Fjórir stagir voru á hvoru siglutré. Þeir voru hertir með köðlum, sem hétu „undirgjarðir“. | |||
Tveir menn voru hafðir til þess að gefa eftir á seglum, þegar misvindi var. Hét það að gefa eftir eða „slaka á pikknum“. Eins var gjört á lensi, þegar stórar kvikur komu að skipinu. Stundum voru seglin höfð þanin sitt á hvort borðið. Það hét að sigla „tveggja skauta byr“. | |||
Vissir menn áttu að seila fiskinn. Fór það eftir því, hvar seila þurfti úr skipinu. Öðrum bar að bera upp siglur og árar, áður en skip var sett. Þeir sóttu einnig „farviðina“, þegar búið var að setja skipið fram. | |||
== Fyrsti kippur. „Að sigla fleyi og sofa í meyjarfaðmi ...“== | |||
Þegar róið var og komið út á miðja Víkina, var ,hvílt". Það var kallaður „kippur“, - fyrsti sjóferðarinnar. Svona var haldið áfram að hvíla, þegar ekki var siglt, þar til komið var í fiskileitir. Ætlazt var til, að hver kippur væri sem næst 10 mínútur. Þegar verið var á færum og kippt var á fiskimiðum, hvíldu yfirskipsmenn þá, er andæft höfðu. | |||
{{Blik}} | {{Blik}} |
breytingar