1.912
breytingar
mEkkert breytingarágrip |
(Grein Karls Gauta Hjaltasonar um Taflfélagið) |
||
Lína 11: | Lína 11: | ||
II. Kafli. Blómaskeiðið eftir 1936 | II. Kafli. Blómaskeiðið eftir 1936 | ||
Taflfélagið var lífgað við á aðalfundinum haustið 1936 og þá voru líka ýmis framfaramál á dagskrá td. var samþykkt að senda Skákfélagi Keflavíkur áskorun í keppni og koma á bréfaskákum við önnur skákfélög inn- og útlend. Þá var bókað um að fengist hafi innflutningsleyfi á skákritum fyrir allt að 100 krónur og gilti leyfið til áramóta. Loks var samþykkt að sækja um í Skáksamband Íslands. Heiðursfélagi var kosinn Sigurbjörn Sveinsson, Sólbergi. | |||
Af minnistæðum mönnum sem tefldu með félaginu á árunum eftir 1936 voru nefndir Karl Sigurhansson, sem tefldi skák á vetrum og var einn besti langhlaupari landsins. Hjálmar Theódórsson frá Húsavík var aðaldriffjöðurin í félaginu og hafði þegar þarna var gerst ársmaður hjá Helga Ben., hann var mikill félagsmálamaður og kappsamur og varð síðar skákmeistari Norðurlands og komst í landsliðsflokk. Þá er Björn Kalman lögfræðingur minnistæður en hann hafði teflt í Ameríku um aldamótin og var á fyrstu árum aldarinnar einn af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar. Hjalti í Vitanum hafði góðan stíl og Rafn Árnason frá Gröf var mikið efni. Hann gerðist farmaður og féll frá fyrir aldur fram. | |||
Í þessa tíð tíðkuðust símskákir, sem stóðu frá kl. 21 að kvöldi til 8 að morgni eða þegar símstöðin var lokuð og var þá oft glatt á hjalla og Loftur kennari, sem var símstjóri félagsins lét marga vísuna fljúga eftir línunni. Á þessum árum hafði félagið um tíma aðsetur í herbergi á Vesturhúsum til æfinga. | |||
Símskákin við Keflvíkingana fór fram nóttina 17. október og unnu Eyjamenn með 7,5 á móti hálfum vinningi Keflvíkingana. Viku seinna var símskák við Taflfélag Hafnarfjarðar og unnu TV menn þá viðureign einnig 5,5 á móti 2,5 vinningi. | |||
Það sýnir best eldhug manna um þetta leyti að á árinu 1937 var lagt í það að fá þýska skákmeistarann Ludvik Engels, sem staddur var í Reykjavík hingað til þess að kenna skák í tvær vikur. Hann varð frægur er hann vann skák af heimsmeistaranum Aljekín. Til þess að fá hann hingað var leitað til ýmissa velunnara í bænum og safnað fé til greiðslu kostnaðar af komu Engels og gekk sú söfnun framar öllum vonum. Engels tefldi hé rnokkur fjöltefli og það fyrsta við 23 menn úr félaginu, þar sem hann vann 16 skákir, tapaði 5 og gerði 2 jafntefli. Þegar Engels fór var hann leystur út með gjöfum og Loftur Guðmundsson, rithöfundur flutti þakkarávarp bæði á íslensku og þýsku. | |||
Þannig var mikill uppgangur í félaginu allt þar til 1939, þegar svo virðist sem starfið hafi lagst niður á nýjan leik, því ekki er skráð í fundargerðarbækur þar til 8. október 1944 þegar félagið er endurvakið enn á ný. | |||
III Kafli. Í lok stríðsins. |