2.379
breytingar
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
The content of the old revision is missing or corrupted. | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:thorsteinn.jpg|thumb| Þorsteinn Jónsson]] | |||
Þorsteinn fæddist í Gularáshjáleigu í Austur Landeyjum 14. október 1880. Hann var sonur Jóns Einarssonar og Þórunnar Þorsteinsdóttur. Þau fluttu til Vestmannaeyja árið 1883. Þorsteinn var kvæntur [[Elínborg Gísladóttir|Elínborgu Gísladóttur]] og eignuðust þau 13 börn. Þorsteinn átti bróður, [[Ísleifur Jónsson|Ísleif Jónsson]] að nafni, sem dó í [[Vilborgarstaðir#Suðurlandsskjálftinn 1896|suðurlandsskjálftanum 1896]] þar sem hann var í fýlatekju í Dufþekju. | |||
== Sjómaður == | |||
Þorsteinn hóf sjómennskuferil sinn um fermingu á opnu skipi með [[Hannes lóðs|Hannesi lóðs]] á [[Miðhús]]um. Hann varð svo formaður á teinæringnum [[Ísak]] árið 1900 og var með hann til ársins 1905. | |||
Hann var ásamt öðrum fyrstur manna til þess að kaupa vélbát til Vestmannaeyja og markaði á þann hátt upphaf vélbátaaldar í Vestmannaeyjum. Báturinn sem Þorsteinn og félagar keyptu var nefndur [[Unnur]] og var Þorsteinn formaður. Hann eignaðist síðar tvo aðra báta með sama nafni og var formaður með þá til ársins 1948 og hafði þá verið formaður í samtals 48 ár. | |||
== Framfarasinni == | |||
Þorsteinn var mjög framfarasinnaður í útgerðarmálum og var meðal annars sá fyrsti til að gera tilraunir með veiðar í þorskanet. Hann var gerður að heiðursborgara Vestmannaeyjabæjar er hann varð sjötugur þann 14. október 1950. | |||
Þorsteinn hafði mikinn áhuga á ritstörfum og eftir hann standa rit og greinar. Hann skrifaði tvær bækur; ævisögu sína, Formannsævi í Eyjum og einnig Aldahvörf í Eyjum sem er greinargóð lýsing á aldarfari í Eyjum í kjölfar upphafs vélbátaútgerðar. | |||
Þorsteinn lést 25. mars árið 1965. | |||
[[Flokkur:Fólk]] | |||
[[Flokkur:Formenn]] | |||
[[Flokkur:Heiðursborgarar]] |
breytingar