„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1983/ Minning látinna“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 15: Lína 15:

Magnús Guðmundsson
'''Magnús Guðmundsson
F. 22. mars 1964 — D. 11. júlí 1982'''

F. 22. mars 1964 — D. 11. júh 1982
Á einu augnabliki er líf ungs drengs hrifsað úr faðmi fjölskyldu og vina. Eftir er sár söknuður, bitur raunveruleikinn að hið mannlega er ekki ódauðlegt afl. En í skauti hugans fæðist endurminning og hún leysir úr læðingi myndir, sem verða svo lifandi og tærar á slíkum stundum. Og ljúft er að minnast, þegar sorg og tregi hefur búið um sig í brjósti vina og ættmenna.

Á einu augnabliki er líf ungs drengs hrifsað úr faðmi fjölskyldu og vina. Eftir er sár söknuður, bitur raunveruleikinn að hið mannlega er ekki
Magnús hét hann, og var sonur Guðmundar Loftssonar og Ásu Magnúsdóttur. Sín bernskuár átti Magnús heima á [[Búastaðir|Búastöðum]]. Sumarfagurt var á Búastöðum og eyjunni austur þar og sást vel til [[Bjarnarey|Bjarnareyjar]] og [[Elliðaey|Elliðaeyjar]] er hvíldu með græna kolla í dimmbláum sænum. Við aftanskin speglaðist á rúðum veiðimannakofanna þar. Hann vissi að einhverntíma yrði hann sjálfur veiðimaður eins og forfeður hans. Og þegar árin liðu hélt hann til fjallanna sinna, stoltur, ungur drengur. Hann sagði að fjöllin hér væru fegurri og grasið grænna en annars staðar. Magnús naut sín vel í útiverunni og unni sinni heimabyggð.

Að grunnskólagöngu lokinni lagði hann fyrir sig trésmíðar og starfaði síðan með Helga móðurbróður sínum, jafnframt námi í Iðnskóla. Smíðavinna var starf sem honum líkaði vel enda í blóð borinn arfur frá öfum sínum. Eitt það síðasta sem hann starfaði við var smíði minnismerkis um [[Oddgeir Kristjánsson|Oddgeir heitinn Kristjánsson.]]

Sá sem þetta ritar átti þess kost að kynnast Magnúsi gegnum árin, og sjá hann þroskast úr litlum drenghnokka í fullmótaðan ungling með heilsteyptan hugsunargang. Í minningu daganna bregður fyrir mynd af ljóshærðum dreng, sem var trúr sinni sannfæringu. Og nú þegar sætið hans er autt vil ég þakka honum fyrir allt það góða og göfuga sem hann lét í té á stuttu æviskeiði sínu. Hann kvaddi þetta líf í blóma með bjartar vonir sem hann ól í brjósti.

Á vængjum morgunsroðans sveif sál hans að fótskör þess almættis sem við biðjum til á erfiðum tímum og þar munu liljur vallarins lýsa honum leið að lindum lifsins þar sem allir hittast að jarðlífí loknu.

Fari vel minn ungi vinur.

Minning hans geymist í muna klökkum.
'''Kristinn V. Pálsson.'''

'''Stefán Valdason'''

'''F.18. mars 1908 — D. 24. júlí 1982.'''

Stefán var fæddur 18. mars 1908 að Miðskála undir [[Eyjafjöll|Eyjafjöllum]]. Foreldrar hans voru þau Valdi Jónsson og Guðrún Stefánsdóttir. 1911 fluttust þau Valdi og Guðrún með börn sín til Vestmannaeyja. Alls urðu systkinin níu, en auk bess átti Valdi 4 börn áður.
Fljótlega eftir að þau fluttust til Eyja byggði Valdi húsið [[Sandgerði]] við Vesturveg. Þar ólst Stefán upp í stórum systkinahópi. Þar átti hann sín léttu spor. Ljúfar minningar æskuáranna yljuðu honum um hjartarætur æ síðar og glöddu hug hans. Þar hafði hann alist upp, og bakgrunnurinn var kliður bjargfuglanna, gjálfur glitbárunnar og hinn ógnþungi niður brimsins, þegar jafnvel björgin titra af lotningu. Svo mikið unni hann Eyjunum sínum, að ef hann þurfti að dveljast annars staðar um tíma var hann ekki í rónni fyrr en hann var kominn aftur heim.

Stebbi Valda, eins og hann var gjarnan kallaður, var harður af sér, duglegur og ósérhlífínn. Hann var drengur góður og lét engan eiga neitt hjá sér. Honum skildist það fljótt að ekki var sóst eftir því að hafa liðleskjur í vinnu hvort sem það var til sjós eða lands. Hann byrjaði ungur að vinna og fljótlega fór hann á sjóinn, sem hann stundaði af og til auk annarar landvinnu.

Stebbi Valda var með afbrigðum vinnusamur maður. Hann var að lundarfari léttur og skemmtilegur og allir sem kynntust honum urðu fljótt varir þessara mannkosta hans.

Mér er það enn minnisstætt hvað ég gladdist þegar ég heyrði fyrst sagt við mig: „Það er gott að vinna með honum Stebba", og varla fá menn betra hrós, þegar það er sagt á þennan hátt og það af mönnum, sem ég vissi að voru orðlagðir fyrir dugnað og seiglu.

Stebbi var um tvítugt þegar hann kynntist eftirlifandi konu sinni, Guðmundu Bjarnadóttur frá Siglufirði. Þau eignuðust 5 börn og eru 3 þeirra á lífi. Fljótlega byggði Stebbi hús við hlið föðurhúsa að Sandgerði og bjó þar til ársins 1963 er hann byggði sér nýtt hús að Bröttugötu 4 og bjó þar til dauðadags.

Stebbi varð fyrir miklu áfalli 1972 er hann slasaðist í vinnu við uppskipun svo að honum var vart hugað líf. Hann náði sér aldrei að fullu eftir þetta og varð að hætta vinnu. Þetta tók mjög á Stebba, sem aldrei gat hugsað sér að vera verkefnalaus.

Að ævikvöldi getur Stefán Valdason hvílt í friði að loknu góðu dagsverki.

'''Agnar Angantýsson'''.

'''Friðrik Garðarsson'''

'''frá Baldurshaga'''

'''F. 21. mars 1931 — D. 4. ágúst 1982.'''

Friðrik var fæddur á Sauðárkróki 21. mars 1931. Ungur að árum hleypti hann heimdraganum og hélt til Vestmannaeyja til þess að stunda þar sjóinn, eins og svo margur ungur maður gerði hér fyrr á árum, er minna var um atvinnu úti á landsbyggðinni en nú er.

Fljótlega eftir komu sína til Eyja kynntist hann eftirhfandi konu sinni, Sesselju Andrésdóttur frá [[Baldurshagi|Baldurshaga,]] en við Baldurshaga var hann oftast kenndur upp frá því. Friðrik og Sesselja hófu búskap, fyrst í Baldurshaga og síðar að Litlu Fagurlist við Urðaveg. Þeim varð tveggja barna auðið og eru þau bæði uppkomin og búin að eignast sín eigin heimili. Friðrik og Sesselja fluttust frá Eyjum fáum dögum fyrir náttúruhamfarimar miklu, fyrst til Grindavíkur, þar sem hann vann við netagerð, og síðar til Hafnarfjarðar þar sem hann gerðist kaupmaður.

Ég undirritaður kynntist Friðriki fyrst er við urðum samskipa á m.b. Maggý með hinum kunna aflamanni Guðna Grímssyni. Margar vertíðar og fleiri úthöld vorum við saman á m.b. Maggý, enda voru menn ekki að hlaupa úr slíku skipsrúmi að ástæðulausu, enda fór svo, að þegar Friðrik fór af þeim bát var það til þess að gerast stýrimaður á öðrum.
Friðrik stundaði sjóinn allan sinn tíma hér í Eyjum, lengst af hjá öðrum, en síðustu árin á eigin útgerð, er hann, ásamt Jóni Ingólfssyni frá [[Mandalur|Mandal]], keyptu m.b. Metu og gerði út í nokkur ár.

Kynni þau er ég hafði af Friðriki á m.b. Maggý entust þar til hann kvaddi þennan heim svo snögglega og langt um aldur fram,4. ágúst síðastliðinn, aðeins 51 árs gamall.
Eins og áður sagði fluttust Friðrik og Sesselja til Grindavíkur, er þau fóru frá Eyjum, og þegar ég, ásamt fjölskyldu minni, urðum að yfirgefa Heimaey, gosnóttina forðum, eins og allir aðrir, og leita verustaðar á fastalandinu, hefur það sjálfsagt ráðið miklu um þá ákvörðun okkar að flytjast til Grindavíkur, að þar voru þau hjónin fyrir.

Friðrik var ekki aðeins góður sjómaður, heldur var hann fyrst og fremst góður maður, léttur í lund og spaugsamur. Friðrik var ekki vinamargur en sannur vinur vina sinna og var ég svo heppinn að fá að njóta vináttu þeirra hjóna. Um leið og við hjónin þökkum Friðriki samfylgdina, sendum við eiginkonu hans og börnum þeirra, ásamt tengdabörnum og barnabörnum, okkar innilegustu samúðarkveðjur.

'''Adólf Sigurgeirsson frá Stafholti'''.

Birgir Traustason
F. 9. júní 1959 — D. 4. ágúst 1982.
Mig langar að minnast mágs míns, Birgis Traustasonar, með örfáum orðum, en hann lést 4. ágúst sl. sumar, aðeins 23 ára að aldri, og var sár harmur kveðinn að fjölskyldu hans við svo snöggt kall.
Birgir fæddist í Vestmannaeyjum 9. júní 1959, sonur hjónanna Sjafnar ólafsdóttur og Trausta Marinóssonar, elstur fjögurra bræðra. Ég kynntist Birgi árið 1977 þegar ég tengdist fjölskyldu hans og áttum við oft á tíðum mjög góðar samverustundir. Því miður átti Birgir við erfiðan sjúkdóm að stríða síðustu árin, sem svo margan góðan dreng hefur lagt að velli. Heimurinn er harður dómari, en oft gætir fólk ekki að því að undir hjúp kæruleysis slær heitt hjarta sem hrópar á hjálp í angist. Það kom oft fram, er við áttum tal saman, að hann þráði annað og betra líf og aldrei heyrði ég hann hallmæla öðmm. Mikil var gleði hans, þegar við létum drenginn okkar heita nafni hans, og sýndi hann honum ávalt mikinn kærleika og ástúð.

Birgir stundaði sjómennsku og þótti lið-tækur til þeirra starfa.
Ég kveð elskulegan mág með miklum söknuði og þeirri fullvissu að við eigum eftir að hitta hann aftur. Guð blessi minningu hans.
Svava Gísladóttir.

Pétur Guðjónsson
frá Kirkjubæ í Vestmannaeyjum
F. 12. júlí 1902 — D. 21. ágúst 1982
Pétur Guðjónsson frá Kirkjubæ í Vest-mannaeyjum, hin síðari ár búsettur í Garði suður, andaðist í Sjúkrahúsinu í Keflavík hinn 21. ágúst 1982.
Pétur á Kirkjubæ var einn þeirra manna, sem setti svip á samtíð sína í Vestmanna-eyjum og verður samferðamönnum minnis-stæður. Hann var alla ævi síkvikuraf krafti og fjöri, vel gefinn, hnyttinn í svörum, hinn besti granni og félagi ágætur hvort sem var á sjó eða í fjöllum, en sérstakan svip setti hann á úteyjalífið í Eyjum. Pétur var nær samfellt í 70 sumur við lundaveiðar í Ellirey og mun slíkt fátítt og áreiðanlega einsdæmi á þessari öld a.m.k.
Fyrst fór hann í Ellirey með föður sínum sumarið 1909, en síðasta sumardvöl hans var sumarið 1981 og höfðu þá aðeins fallið 3 sumur úr veru hans í Ellirey síðan 1909.
Pétur Guðjónsson var fæddur á Odd-stöðum í Vestmannaeyjum 12. júlí 1902, sonur hjónanna Guðjóns Jónssonar Vigfús-sonar líkkistusmiðs
1.368

breytingar

Leiðsagnarval