Jenný Ásgeirsdóttir
Jenný Ásgeirsdóttir frá Rvk, húsfreyja fæddist þar 1. nóvember 1943.
Foreldrar hennar voru Ásgeir Hilmar Guðmundsson garðyrkjumaður, f. 17. júní 1920, d. 5. ágúst 1976, og María Ingimundardóttir, f. 21. febrúar 1923, d. 28. apríl 1994.
Jenný eignaðist barn með Gylfa 1963.
Þau Ægir giftu sig 1966, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu við Herjólfsgötu 5.
I. Barnsfaðir Jennýjar er Gylfi Hallgrímsson, f. 29. janúar 1941.
Barn þeirra:
1. María Gylfadóttir, verkakona, f. 9. mars 1963.
II. Maður Jennýjar, (21. febrúar 1966), var Ægir Sigurðsson, sjómaður matsveinn, f. 10. ágúst 1945, d. 20. september 2015.
Barn þeirra:
1. Kristbjörn Ægisson, verkamaður, bifreiðastjóri hjá Olís, síðast í Rvk, f. 15. júní 1967, d. 13. nóvember 2016.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.