Júlíus Sigurðsson (prentari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Júlíus Sigurðsson.

Júlíus Sigurðsson frá Akureyri, prentari fæddist 15. júlí 1894 og lést 7. febrúar 1960.
Foreldrar hans voru Sigurður Guðmundsson sjómaður á Akureyri, f. 18. október 1852, d. 9. október 1918, og Soffía Guðjónsdóttir, f. 23. október 1856, d. 16. apríl 1936.

Júlíus var með foreldrum sínum á Akureyri 1901, leigjandi á Akureyri 1910.
Hann var við prentnám frá 1910 á Akureyri, hjá Birni Jónssyni og Oddi Björnssyni.
Júlíus fór til Reykjavíkur, vann hjá Ísafoldarprentsmiðju 1915-1917, hjá Félagsprentsmiðjunni frá 1919-1932, er hann réðst til Prentfélags Vestfirðinga á Ísafirði, vann þar í sex ár, stundaði ýmsa aðra vinnu 1929-1936, var m.a. fangavörður þar.
Júlíus var prentari í Eyjum 1936-1938.
Hann flutti til Reykjavíkur, vann um skeið hjá Prentsmiðju Jóns Helgasonar, en þó aðallega í Víkingsprenti til 14. júlí 1941, er hann slasaðist og varð að hætta störfum.
Hann átti barn með Kristínu Þóru 1923.
Þau Sigurbjörg giftu sig 1917, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í Litla-Hvammi við Kirkjuveg 39B.
Þau fluttu til Reykjavíkur, bjuggu síðast við Vesturgötu 5.

I. Barnsmóðir Júlíusar var Kristín Þóra Kristjánsdóttir frá Ísafirði, f. 11. maí 1903, d. 27. júlí 1948.
Barn þeirra:
1. Kristján Samúel Júlíusson sviðsmaður, sjómaður, farmaður, húsasmiður, f. 14. nóvember 1923, d. 12. maí 2006. Kona hans Edda Ágústsdóttir og Elínar Fannýjar Friðriksdóttur.

II. Kona Júlíusar, (28. september 1917), var Sigurbjörg Eiríksdóttir frá Patreksfirði, húsfreyja, f. 22. október 1896, d. 24. september 1967. Foreldrar hennar voru Eiríkur Einarsson á Patreksfirðir, Ísafirði og í Reykjavík, f. 15. september 1863, d. 27. ágúst 1933 og Vigdís Einarsdóttir, f.14. maí 1870, d. 20. september 1938.
Börn þeirra:
2. Sigurður Norðmann Júlíusson verkamaður í Reykjavík, f. 14. júlí 1918 á Patreksfirði, d. 25. desember 1981.
3. Aðalheiður Ragna Júlíusdóttir húsfreyja í Kanada, f. 9. apríl 1923 á Ísafirði, d. í maí 2000. Maður hennar Leivi Otto Hansen.
4. Soffía Eydís Júlíusdóttir iðnverkakona, síðast á Egilsstöðum, S.-Múl., f. 17. september 1925 á Ísafirði, d. 19. mars 1968.
5. Þórður Kristinn Júlíusson rafvirki í Kópavogi, f. 19. júlí 1928 á Ísafirði, d. 4. september 2016. Kona hans Þórdís Helga Guðmundsdóttir.
6. Gunnar Agnar Júlíusson símsmiður, yfirdeildarstjóri í Reykjavík, f. 28. júní 1936 á Ísafirði, d. 14. febrúar 2009. Kona hans Gyða Gunnarsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bókagerðarmenn frá upphafi prentlistar á Íslandi. Svanur Jóhannesson, Ari Gíslason, Sverrir Marinósson. Bókbindarafélag Íslands, Hið íslenska prentarafélag, Grafíska sveinafélagið, 1976.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.