Jón Eiríksson (hermaður)
Jón Eiríksson hermaður, námuverkamaður í Nevada-fylki í Bandaríkjunum fæddist (20. nóvember 1879).
Foreldrar hans voru Eiríkur Eiríksson bóndi á Vesturhúsum, f. 1827 á Götum í Mýrdal, d. 15. nóvemberr 1882, og barnsmóðir hans Guðrún Erlendsdóttir vinnukona, f. 8. júlí 1850 á Gjábakka, d. 4. september 1887 í Utah.
Fæðing Jóns í Eyjum, vera hans þar á manntölum, sóknarmannatölum né brottför til Vesturheims finnst ekki skráð í Eyjum. Guðrún móðir hans ól Jón Karl Eyjólfsson 24. nóvember 1879. Í bókinni Minningarrit íslenzkra hermanna 1914-1918 er hann sagður sonur Eyjólfs Eiríkssonar og Guðrúnar Eyvindsdóttur, sem er rangt. samkv. Sigfúsi M. Johnsen. Sigfús var nær honum í tíma.
Hann fór til Vesturheims og gekk í Bandaríkjaher 1916. Kom heim til Nevada 1919 og vann þar við námugröft.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Minningarrit íslenzkra hermanna 1914-1918. Winnipeg. Félagið Jón Sigurðsson, I.O.D.E., 591 R. of C 1923.
- Saga Vestmannaeyja, Herfylkingin, I., bls. 311 (og neðanmáls þar).
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.