Jón Árnason (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Árnason bóndi á Búastöðum fæddist 1739 og lést 21. ágúst 1804.

Jón var ekkill og bóndi á Búastöðum 1801, dó „af brjóstveiki“.
I. Kona Jóns var Brynhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 1751, d. 4. febrúar 1799 úr landfarsótt.
Börn þeirra hér:
1. Þorgerður Jónsdóttir, f. 22. febrúar 1787, á lífi 1801 hjá föður sínum. Hún finnst ekki 1816.
2. Einar Jónsson, f. 1. apríl 1789, d. 5. apríl 1789 úr „landfarsótt“.
3. Magnús Jónsson, f. 26. ágúst 1791, d. 12. september 1791 „af brjóstveiki“.
4. Oddur Jónsson, f. í desember 1793, 9 ára fátæklingur í Nýjabæ 1801. Hann finnst ekki 1816.
(Dánarskrár voru fyrst haldnar í Eyjum 1785, gloppóttar 1813-1816. Fermingar-, hjónabands- og fæðingaskrár voru fyrst haldnar 1786).


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.