Jónína Þorsteinsdóttir (Dölum)
Jónína Þorsteinsdóttir frá Dölum, síðar húsfreyja í Utah fæddist 26. nóvember 1885 og lést 16. mars 1955.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Pétursson smiður í Dölum, f. 17. júní 1850 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal, d. 22. júní 1939 í Utah, og síðari kona hans Sigríður Eiríksdóttir húsfreyja, f. 23. júní 1865 í Mið-Mörk u. V-Eyjafjöllum, d. 23. mars 1934 í Utah.
Barn Þorsteins og Ástrósar fyrri konu hans var
1. Ástrós Þorsteinsdóttir, f. 4. ágúst 1884, d. 1911. Hún fór til Utah með föður sínum og stjúpu 1887, nefndist Mrs. William C. Boyd.
Börn Þorsteins og Sigríðar síðari konu hans:
2. Jónína Þorsteinsdóttir, f. 26. nóvember 1885, d. 16. mars 1955.
3. Dómhildur Þorsteinsdóttir, f. 2. júní 1887. Hún lést í New York á leiðinni til Utah.
4. og 5. Tvö börn fædd í Utah.
Jónína var með foreldrum sínum í Dölum og fluttist með þeim til Utah 1887.
Þau bjuggu í fyrstu í Springville í Utah-héraði í Utah, en fluttust til Spanish Fork.
Jónína giftist Dell Fullmer 1903 og eignaðist með honum 13 börn.
Hún ritaði bók, þar sem hún sagði sögu íslenskrar stúlku, sem gengur veg sinn í nýju Zion (New Zion).
Hún lést 1955.
I. Maður Jónínu, (12. ágúst 1903), var Delbert Darrow Fullmer í Utah, f. 6. maí 1884 í Springville í Utah, d. 1941.
Börn þeirra:
1. Delbert T. Fullmer í Springville, f. um 1905.
2. Howard C. Fullmer í Springville, f. um 1906.
3. William Fullmer í Springville, f. um 1907.
4. Joy Peough Bliss Fullmer í Springville, f. um 1908.
5. Fontellea í Salt Lake City, f. um 1909.
6. Allen L. Fullmer í Salt Lake City, f. um 1909.
7. Jewett C. Glenn í Salt Lake City, f. um 1910.
8. Etta Paxman í Salt Lake City, f. um 1910.
9. Norma Ferre húsfreyja í Orem í Utah, f. um 1910.
10. Lois Smith í Pleasant Grove í Utah, f. um 1910.
11. Carlol Miner í Fresmo í Kaliforníu, f. um 1915.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Magnús Haraldsson.
- Prestþjónustubækur.
- The Icelanders of Utah. La Nora Allsted.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.