Jóhanna Hermansen (listmálari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Hermansen frá Birkihlíð 19, húsfreyja, ritari, myndlistarmaður fæddist 28. maí 1954.
Foreldrar hennar voru Guðni Hermansen frá Ásbyrgi, málarameistari, myndlistarmaður, f. 28. mars 1928, d. 21. september 1989, og kona hans Sigríður Jóna Kristinsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, starfsmaður félagsheimilis, f. 29. september 1929 á Rafnseyri við Kirkjuveg 15b, d. 12. ágúst 2010.

Börn Sigríðar Jónu og Guðna:
1. Kristinn Agnar Hermansen málarameistari, f. 24. október 1950. Kona hans Guðfinna Edda Eggertsdóttir.
2. Jóhanna Hermansen húsfreyja, ritari, myndlistarmaður, f. 28. maí 1954. Maður hennar Ágúst Birgisson.

Jóhanna var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum, lærði tækniteiknun í Danmörku 1984. Hún nam við Myndlistarskólann Kópavogs 2009.
Jóhanna vann á skrifstofu bæjarfógeta í Eyjum frá nóvember 1972-maí 1977, var ritari hjá lögfræðistofum í Reykjavík, síðan þjónusturfulltrúi hjá Öryrkjabandalaginu í Reykjavík í 5 ár eða til starfsloka vegna aldurs.
Jóhanna málar aðallega með olíu og viðfangsefni hennar eru aðallega börn, náttúran, portrait og abstrakt. Hún hefur haldið fjölda samsýninga og 3 einkasýningar. Þau Ágúst eiga 4 börn.

I. Maður Jóhönnu er Ágúst Birgisson tæknifræðingur, f. 16. maí 1957. Foreldrar hans voru Birgir Ágústsson húsgagnasmíðameistari, f. 2. október 1933 á Fáskrúðsfirði, d. 2. júní 2003, og fyrrum kona hans Þórey Sigurbjörnsdóttir húsfreyja, f. 13. júní 1935.
Börn þeirra:
1. Elva Björk Ágústsdóttir, með BA-próf í sálfræði, sálfræðikennari, f. 26. maí 1980. Fyrrum maður hennar Ágúst Ingi Arason. Maður hennar Gísli Hrafnkelsson.
2. Ari Birgir Ágústsson leikari, vinnur við kvikmyndagerð, f. 23. maí 1987. Sambúðarkona hans Ásbjörg Einarsdóttir.
3. Guðni Agnar Ágústsson húsasmíðameistari, f. 2. ágúst 1990. Sambúðarkona hans Salóme Gísladóttir.
4. Sigríður Margrét Ágústsdóttir markaðsfræðingur, f. 14. ágúst 1996. Sambúðarmaður hennar Guðmundur Ragnarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.