Ingibjörg Úlfarsdóttir (Melstað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Úlfarsdóttir frá Fljótsdal í Fljótshlíð, húsfreyja fæddist 13. október 1893 og lést 14. janúar 1969.
Foreldrar hennar voru Úlfar Jónsson bóndi, f. 24. september 1864 í Fljótsdal, d. 20. apríl 1932, og kona hans Guðlaug Brynjólfsdóttir húsfreyja, f. 20. apríl 1871 í Vesturkoti á Skeiðum, d. 17. febrúar 1910. Stjúpmóðir Ingibjargar var Kristrún Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 8. desember 1878, d. 13. mars 1971.

Börn Úlfars og Guðlaugar voru:
1. Óskar Úlfarsson, f. 27. des. 1889 í Fljótsdal, d. 5. janúar 1946.
2. Guðjón Úlfarsson trésmiður, bóndi í Vatnsdal í Fljótshlíð, f. 24. maí 1891 í Fljótsdal, d. 13. maí 1960. Hann var kvæntur Þuríði Guðrúnu Vigfúsdóttur.
3. Jón Úlfarsson bóndi í Fljótsdal, f. 22. júlí 1892 í Fljótsdal, d. 25. nóv. 1954.
4. Ingibjörg Úlfarsdóttir húsfreyja, f. 13. okt. 1893 í Fljótsdal, d. 14. jan. 1969. Maður hennar var Guðjón Kr. Þorgeirsson.
5. Brynjólfur Úlfarsson bóndi á Efri-Þverá í Fljótshlíð og í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum, f. 12. febrúar 1895, d. 6. mars 197 9.
6. Ágúst Úlfarsson trésmiður, útgerðarmaður, f. 9. júní 1896 í Fljótsdal, d. 5. október 1979, kvæntur Sigrúnu Jónsdóttur frá Vilborgarstöðum, húsfreyju á Melstað við Faxastíg 8B.
7. Guðrún Úlfarsdóttir, ráðskona í Drangshlíð undir Eyjafjöllum, f. 29. okt. 1897 í Fljótsdal, d. 28. apríl 1985.
8. Ingunn Úlfarsdóttir húsfreyja, f. 6. jan. 1899 í Fljótsdal, d. 18. nóv. 1958. Hún var gift Sigurði Sigurðssyni, sjómanni og skipasmið í Vestmannaeyjum.
9. Guðbjörg Úlfarsdóttir Norðdahl húsfreyja, f. 7. sept. 1901 í Fljótsdal, d. 3. febrúar 1975.
10. Þórunn Úlfarsdóttir húsfreyja, f. 31. jan. 1903 í Fljótsdal, d. 21. desember 1988.
11. Elín Úlfarsdóttir, f. 15. febrúar 1904, d. 1. ágúst 1904.
12. Sæmundur Úlfarsson bóndi á Heylæk, f. 7. ágúst 1905 í Fljótsdal, d. 16. febrúar 1982.
13. Sigurþór Úlfarsson, f. 3. febrúar 1907, d. 10. desember 1981.
14. Magnús Úlfarsson, f. 27. ágúst 1908, d. 4. september 1908.
15. Andvana barn, f. 7. febrúar 1910.
Börn Úlfars og síðari konu hans Kristrúnar Kristjánsdóttur:
16. Guðlaug Elín Úlfarsdóttir húsfreyja, f. 24. janúar 1918, d. 20. apríl 2002.
17. Sigurður Úlfarsson kennari, húsgagnasmíðameistari, f. 19. mars 1919, d. 7. júlí 2011.
18. Kristján Úlfarsson iðnverkamaður, f. 17. október 1921, d. 3. nóvember 1989.
19. Barn, sem dó í bernsku.


ctr


Börnin frá Fljótsdal, frá fyrra hjónabandi Úlfars. Í neðri hornum myndarinnar eru foreldrar þeirra, Úlfar Jónsson t.v. og Guðlaug Brynjólfsdóttir t.h.
Fremri röð frá vinstri: Guðrún Úlfarsdóttir, Ingunn Úlfarsdóttir, Ingibjörg Úlfarsdóttir, Guðbjörg Úlfarsdóttir, Þórunn Úlfarsdóttir.
Aftari röð frá vinstri: Brynjólfur Úlfarsson, Jón Úlfarsson, Sæmundur Úlfarsson, Óskar Úlfarsson, Ágúst Úlfarsson, Guðjón Úlfarsson, Sigurþór Úlfarsson.

Ingibjörg var með foreldrum sínum í Fljótsdal 1901 og með ekklinum föður sínum þar í lok árs 1910 og með föður sínum og Kristrúnu stjúpu sinni þar 1920.
Þau Guðjón fluttust til Eyja 1928, giftu sig í nóvember. Þau bjuggu í fyrstu á Melstað, eignuðust Guðlaugu Þórdísi þar 1929 og Úlfar 1931.
Þau bjuggu í Sunnuhlíð við Vesturveg 30 1934, á Höfðabrekku við Faxastíg 15 1940, í Sólheimatungu við Brekastíg 14 1945.
Þau fluttu úr Eyjum síðari hluta fimmta áratugarins. Ingibjörg bjó síðast við Dalbraut 1 í Reykjavík.
Hún lést 1969 og Guðjón Þorgeir 1983.

I. Maður Ingibjargar, (3. nóvember 1928), var Guðjón Kristinn Þorgeirsson verkamaður, f. 13. nóvember 1905, d. 13. nóvember 1983.
Börn þeirra:
1. Guðlaug Þórdís Guðjónsdóttir, f. 23. desember 1929 á Melstað, d. 21. júlí 2023.
2. Úlfar Guðjónsson, f. 9. október 1931 á Faxastíg 8, d. 15. júní 1998.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.