Ingi Stefán Ingason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingi Stefán Ingason, kennslustjóri, skipstjóri , leiðsögumaður fæddist 5. maí 1950.
Foreldrar hans Ingi Gunnar Stefánsson, bóndi, f. 7. ágúst 1918, d. 4. mars 1950, og kona hans Guðfinna Ólafsdóttir frá Fagradal í Mýrdal, húsfreyja, f. 16. september 1923, d. 9. maí 2015.

Börn Guðfinnu og Inga Gunnars:
1. Sigrún Ósk Ingadóttir húsfreyja, hárgreiðslumeistari, fyrrverandi framleiðslustjóri. Hún rekur nú fyrirtækið Kerfi í Hafnarfirði, f. 28. nóvember 1948. Maður hennar er Guðmundur Sigurðsson.
2. Ingi Stefán Ingason kennslustjóri, skipstjóri, leiðsögumaður, f. 15. maí 1950. Kona hans er Katrín Þ. Andrésdóttir.
Börn Guðfinnu og Erlendar Stefánssonar:
3. Stefán Erlendsson netagerðarmaður, f. 5. september 1965, d. 31. desember 2000.
4. Ólafur Erlendsson netagerðarmaður, vinnur í Hampiðjunni, f. 5. september 1965. Kona hans er Gunnhildur V. Kjartansdóttir.
5. Kjartan Erlendsson verkamaður í Danmörku, f. 23. janúar 1967. Kona hans er Rikke Kiil Erlendsson.

Þau Katrín giftu sig, eignuðust tvö börn.

I. Kona Inga Stefáns er Katrín Þorbjörg Andrésdóttir, húsfreyja, 14. febrúar 1953. Foreldrar hennar Andrés Andrésson, f. 3. ágúst 1901, d. 14. maí 1984, og Marta Guðjónsdóttir, f. 3. ágúst 1912, d. 9. október 1993.
Börn þeirra:
1. Andrés Ingason, f. 17. desember 1978. Kona hans Rakel Jensdóttir.
2. Sólveig Ingadóttir, f. 16. október 1984. Maður hennar Ívar Bjarki Magnússon.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.