Iðunn Gunnarsdóttir
Iðunn Gunnarsdóttir, með masterspróf í upplýsingafræði (M.I.S), starfsmaður velferðarsviðs Reykjabvíkurborgar, fæddist 15. júní 1981 í Eyjum.
Foreldrar hennar Gunnar Ingi Einarsson, f. 29. október 1951, d. 26. febrúar 1995, og Birna Hilmisdóttir, f. 2. apríl 1953.
Börn Birnu og Gunnars Inga:
1. Alda Gunnarsdóttir, f. 6. mars 1973 í Rvk.
2. Hrefna Gunnarsdóttir, f. 23. febrúar 1980 í Eyjum.
3. Iðunn Gunnarsdóttir, f. 15. júní 1981 í Eyjum.
Þau Tryggvi Hreinn hófu sambúð, eiga tvö börn. Þau búa í Rvk.
I.. Sambúðarmaður Iðunnar er Tryggvi Hreinn Bjarnason, lagerstjóri, f. 16. janúar 1983. Foreldrar hans Bjarni Ásgeir Friðriksson, f. 29. maí 1956, og Anna Guðný Ásgeirsdóttir, f. 19. september 1957.
Börn þeirra:
1. Gunnar Ingi Tryggvason, f. 26. nóvember 2008.
2. Anna Birna Tryggvadóttir, f. 12. maí 2014.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Iðunn.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.