Hermann Hreiðarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Hermann í landsliðsbúningnum.

Hermann Hreiðarsson er fæddur 11. júlí 1974. Hermann er kvæntur Rögnu Lóu Stefánsdóttur og eiga þau saman dæturnar Telmu og Ýdu. Ragna Lóa átti tvö börn áður, Stefán og Elsu.

Hermann lék allra yngri flokkana með ÍBV og lék með meistaraflokki félagsins til ársins 1997 er hann gekk til liðs við enska liðið Crystal Palace. Hermann hefur auk þess leikið með Brentford, Wimbledon, Ipswich, Charlton, Portsmouth og Coventry í ensku úrvaldsdeildinni og neðri deildum.

Hermann á um 65 landsleiki að baki fyrir A-landslið Íslands en hefur auk þess leikið með yngri landsliðum Íslands.