Hávarður Emilsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hávarður Emilsson húsasmíðameistari fæddist 17. september 1945 í Varmadal við Skólaveg 24.
Foreldrar hans voru Bjarni Emil Pálsson frá Þingholti, skipstjóri, matsveinn, f. 8. september 1923, fórst 28. október 1983, og kona hans Óla Björg Bergþórsdóttir frá Neskaupstað, húsfreyja, f. 31. ágúst 1923, d. 29. janúar 1999.

Börn Emils og Bjargar:
1. Hávarður Emilsson húsasmíðameistari, f. 17. september 1945 í Varmadal, Skólavegi 24. Kona hans er Fríður Hlín Sæmundsdóttir.
2. Þórunn Kristín Emilsdóttir húsfreyja, framreiðslumeistari, f. 28. desember 1949. Barnsfaðir hennar er Baldur Brjánsson. Maður hennar er Kristinn Eyvindsson.
Börn Emils og Láru:
3. Emil Þór Emilsson bílasmiður, f. 5. júní 1957. Kona hans er Ingibjörg Einarsdóttir.
4. Kristinn Már Emilsson framkvæmdastjóri, f. 9. nóvember 1965. Kona hans er Margrét Alexandersdóttir.
Börn Láru og stjúpbörn Emils:
5. Tryggvi Hermannsson, f. 22. apríl 1947. Barnsmæður hans Rósa Kristín Þórisdóttir og Kristrún Þóra Axelsdóttir. Kona hans er Inga Stefánsdóttir.
6. Eðvarð Hermannsson, f. 18. desember 1948. Kona hans er Elsa Jónasdóttir.

Þau Fríður Hlín giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Rvk.

I. Kona Hávarðar er Fríður Hlín Sæmundsdóttir leikskólakennari, f. 13. mars 1947. Foreldrar hennar Ólöf Guðmundsdóttir, f. 17. mars 1913, d. 9. desember 2008, og Sæmundur Friðjónsson, f. 14. október 1903, d. 30. október 1987.
Börn þeirra:
1. Linda Björk Hávarðardóttir, f. 23. mars 1969.
2. Gunnar Hávarðarson, f. 14. mars 1971.
3. Guðlaugur Hávarðarson, f. 4. júní 1981.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.