Gunnar Bergur Runólfsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gunnar Bergur Runólfsson, flugvallarstarfsmaður, rekur fyrirtæki í steinsögun, borun og fleira, fæddist 8. febrúar 1981.
Foreldrar hans Runólfur Alfreðsson, verkamaður, lagerstjóri, f. 25. júní 1949, og Guðrún María Gunnarsdóttir, húsfreyja, ræstitæknir, húsmóðir Landakirkju, f. 11. júlí 1945.

Börn Maríu og Runólfs:
1. Sigfríð Runólfsdóttir kaupmaður, f. 25. október 1967. Sambúðarmaður hennar Þorvaldur Ólafsson.
2. Aðalheiður Runólfsdóttir veitingamaður, f. 6. október 1976. Barnsfaðir hennar Guðmundur Ólafsson. Maður hennar Ólafur Guðlaugsson.
3. Gunnar Bergur Runólfsson, rekur fyrirtæki í steinsögun, borun og fleira, f. 8. febrúar 1981. Kona hans María Pétursdóttir.

Þau María giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Heiðarveg 20.

I. Kona Gunnars Bergs er María Pétursdóttir, húsfreyja, hárgreiðslukona, f. 3. júní 1968.
Börn þeirra:
1. Tómas Runi Gunnarsson, f. 17. apríl 2007.
2. Pétur Dan Gunnarsson, f. 2. mars 2009.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.