Guðmunda Jóhannsdóttir (Auðsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðmunda Hermannía Jóhannsdóttir húsfreyja á Auðsstöðum við Brekastíg 15b fæddist 14. júlí 1907 í Efri-Vatnahjáleigu (Svanavatni) í A -Landeyjum og lést 18. mars 1973.
Foreldrar hennar voru Jóhann Jónsson bóndi í Efri-Vatnahjáleigu, f. 22. okt. 1858, d. 3. maí 1929 og k.h. Jónína Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. sept. 1876, d. 11. nóvember 1935.

Börn Jóhanns og Jónínu Steinunnar í Eyjum:
1. Guðmunda Hermannía Jóhannsdóttir húsfreyja á Auðsstöðum við Brekastíg 15b, f. 14. júlí 1907, d. 18. mars 1973.
2. Gíslný Jóhannsdóttir húsfreyja á Eystri-Vesturhúsum, f. 3. júlí 1911, d. 14. janúar 1993.
3. Jónína Jóhannsdóttir húsfreyja á Eystri-Vesturhúsum, f. 23. febrúar 1914, d. 20. ágúst 1962.

Guðmunda var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Árni giftu sig 1945, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu á Auðsstöðum.

I. Maður Guðmundu Hermanníu, (15. desember 1945), var Árni Pálsson sjómaður, matsveinn, f. 16. apríl 1903 á Efra-Hvoli í Hvolhreppi, d. 17. mars 1961.
Barn þeirra:
1. Páll Árnason netagerðar- og múrarameistari, f. 21. júlí 1945 á Auðsstöðum, d. 1. janúar 2021 í Hraunbúðum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.