Guðleifur Ísleifsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðleifur Ísleifsson.

Guðleifur Ísleifsson skipstjóri fæddist 10. október 1906 í Neðri-Dal u. Eyjafjöllum og lést 20. mars 1967.
Foreldrar hans voru Ísleifur Bergsteinsson bóndi í Seljalandsseli og víðar og ferjumaður á Óseyrarnaesi við Ölfusá, verkamaður í Eyjum 1930, síðast í Innri-Njarðvík, f. 27. júní 1869 í Stóradalssókn, d. 16. mars 1941, og kona hans Guðný Sigurðardóttir húsfreyja, f. 15. febrúar 1866 í Eystri-Garðsauka í Hvolhreppi, d. 6. september 1948.

Börn Guðnýjar og Ísleifs með heimilisfestu í Eyjum 1930:
1. Sigurður Ísleifsson skipstjóri í Hafnarfirði, f. 6. ágúst 1899, d. 15. nóvember 1964.
2. Anna Ísleifsdóttir, f. 10. mars 1902, d. 17. september 1940.
3. Guðleifur Ísleifsson skipstjóri, f. 10. október 1906, d. 20. mars 1967.
4. Aðalheiður Ísleifs Hafliðadóttir dóttir Önnu Ísleifsdóttur og fósturdóttir Guðnýjar og Ísleifs, húsfreyja. Aðalheiður f. 28. janúar 1929 á Brekastíg 24 í Eyjum, d. 24. september 2018.

Guðleifur var með foreldrum sínum, í Seljalandsseli 1920, á Óseyrarnesi við Ölfusá 1920, flutti með þeim til Eyja 1924, með heimilisfestu á Brekastíg 24 í Eyjum 1930, en var þá vélstjóri á Siglufirði.
Hann lauk fiskimannaprófi á Akureyri 1936.
Guðleifur stundaði sjómennsku í Eyjum, varð skipstjóri þar um tvítugt, var með ýmsa báta frá Suðurnesjum frá árinu 1939 til dánardægurs, t.d. Keflvíking, Andvara, Gullborgu.
Þau Ólöf Sveinhildur giftu sig 1931, eignuðust sex börn. Þau hófu búskap í Vestmennaeyjum, bjuggu á Brekastíg 24 og í Nýjabæ, fluttu 1934 til Siglufjarðar. Þar var Guðleifur vitavörður á Sauðanesi. Þau áttu þar heima skamma hríð. Þá áttu þau heima um þrettán ára skeið í Hafnarfirði eða til ársins 1949, er þau fluttust til Keflavíkur og áttu heima þar síðan.
Guðleifur lést 1967 og Ólöf 1999.

I. Kona Guðleifs, (20. maí 1931), var Ólöf Sveinhildur Helgadóttir frá Grund á Dalatanga í Mjóafirði eystra, f. 16. nóvember 1906, d. 19. nóvember 1999.
Börn þeirra:
1. Ísleifur Guðleifsson skipstjóri, hafnarvörður, f. 6. desember 1931 á Brekastíg 24, d. 12. apríl 2023. Kona hans Sigrún Haraldsdóttir, látin.
2. Helgi Guðleifsson vélstjóri, f. 24. september 1933 í Nýjabæ. Kona hans Einarína Sigurveig Hauksdóttir.
3. Kristján Guðleifsson bifreiðastjóri, f. 26. febrúar 1935. Kona hans Anna Maggý Guðmundsdóttir.
4. Ingibjörg Sigurlaug Guðleifsdóttir húsfreyja, f. 1. febrúar 1937. Maður hennar Guðmundur Stefánsson.
5. Vilborg Guðleifsdóttir húsfreyja, f. 30. maí 1939, d. 14. apríl 1995.
6. Heiðrún Guðleifsdóttir húsfreyja, f. 18. desember 1948


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.