Guðlaug Ragnheiður Guðbrandsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaug Ragnheiður Guðbrandsdóttir frá Stardal í Kjós., húsfreyja fæddist 18. mars 1921 í Reykjavík og lést 27. febrúar 1966.
Foreldrar hennar voru Guðbrandur Guðmundsson, f. 11. október 1885, d. 24. apríl 1950, og Sigríður Magnúsdóttir, f. 6. september 1893, d. 14. janúar 1924.
Fósturforeldrar hennar frá þriggja ára aldri voru bændur í Berjaneskoti u. Eyjafjöllum, þau Andrés Pálsson, f. 30. ágúst 1869, d. 5. desember 1952 og kona hans Katrín Magnúsdóttir, f. 25. ágúst 1862, d. 6. janúar 1954.

Guðlaug var með foreldrum sínum til 1924, en fór þá í fóstur að Berjaneskoti.
Þau Jón fluttu til Eyja, giftu sig þar 1940, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu á Svalbarði við fæðingu Sirrýjar 1940, í Kaupangi við Vestmannabraut 31 við fæðingur Ólafs 1944 og í Langa-Hvammi við Kirkjuveg 41 við fæðingu Hafdísar 1949.
Þau fluttu til Reykjavíkur 1955.
Guðlaug eignaðist barn með Gísla 1964.
Guðlaug lést 1966 og Jón 1996.

I. Maður Guðlaugar Ragnheiðar, (27. október 1940), var Jón Kristinn Tómas Ólafsson frá Leirum u. Eyjafjöllum, sjómaður, verkamaður, verslunarmaður, f. 24. ágúst 1910, d. 25. júlí 2003.
Börn þeirra:
1. Sirrý Laufdal Jónsdóttir, f. 13. september 1940 á Svalbarði.
2. Ólafur Laufdal Jónsson, f. 10 ágúst 1944 í Kaupangi. Barnsmæður hans Herdís Hauksdóttir, Jóna Hafsteinsdóttir og Helga Kristjana Austmann Jóhannsdóttir. Kona hans Kristín Ketilsdóttir.
3. Trausti Laufdal Jónsson, f. 17. maí 1947 í Kaupangi. Kona hans Hrönn Haraldsdóttir.
4. Hafdís Laufdal Jónsdóttir, f. 12. maí 1949 í Langa-Hvammi við Kirkjuvegi 41.
5. Erling Laufdal Jónsson, f. 21. desember 1954.

II. Barnsfaðir Guðlaugar var Gísli Stefánsson frá Raufarfelli u. Eyjafjöllum, f. 18. desember 1905, d. 26. september 1983.
Barn þeirra:
6. Stefán Laufdal Gíslason, f. 12. júlí 1964.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 1. ágúst 2003. Minning Jóns Ólafssonar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.