Guðbjörg Davíðsdóttir (hjúkrunarfræðingur)
Guðbjörg Davíðsdóttir frá Miðdal í Kjós, hjúkrunarfræðingur fæddist þar 17. maí 1951.
Foreldrar hennar Davíð Guðmundsson bóndi, síðar í Rvk, f. 30. desember 1914 á Litla-Sandi á Hvalfjarðarströnd, d. 7. desember 2013, og kona hans Rósa Eiríksdóttir frá Egilsseli í Fellum, húsfreyja, f. 19. janúar 1920, d. 11. ágúst 2008.
Guðbjörg varð gagnfræðingur í Vogaskóla í Rvk 1968, lauk prófum í Ljósmæðraskóla Íslands 1974, lauk námi í Nýja hjúkrunarskólanum í mars 1978.
Hún var ljósmóðir á Sjúkrahúsi Akraness október 1974 til mars 1975, á Drammen sjúkrahúsi mars til júlí 1975, hjúkrunarfræðingur á handlækningadeild Landakotsspítala mars 1978 til júní s. á., á hjartadeild frá 1. október 1978 til september 1982, við gervinýra september 1982 til júlí 1983, á Sjúkrahúsinu í Eyjum júlí til september 1983, ljósmóðir þar september 1983 til áramóta 1984/1985, ljósmóðir á Lsp frá júní 1985.
Hún eignaðist barn með Stefáni 1977.
I. Barnsfaðir Guðbjargar var Stefán Brynjólfsson, f. 28. ágúst 1952, d. 11. júlí 2019.
Barn þeirra:
1. Róbert Stefánsson, f. 10. ágúst 1977. Unnusta hans Shawna Cook.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Hjúkrunarfræðingatal I-III. Hjúkrunarfélag Íslands 1969-1992.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning Rósu Eiríksdóttur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.