Gísli Guðmundsson (Arnarnesi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Guðmundsson frá Skúfsstöðum í Hólahreppi í Skagafirði, verkamaður, sjómaður fæddist þar 11. ágúst 1876 og lést 2. júlí 1956. Foreldrar hans voru Guðmundur Andrésson, f. 24. mars 1831, d. 11. apríl 1898, og Guðbjörg Hallsdóttir húsfreyja , f. 24. september 1845 í Flugumýrarsókn í Skagafirði, d. 5. janúar 1918.

Gísli var með foreldrum sínum í Víðinesi í Hólasókn 1880, á Ytri-Brekkum í Hofsstaðasókn 1890, mun vera sá, sem var nemi við Möðruvallaskóla 1901, með ekkjunni móður sinni í Hrísey 1910.
Hann flutti til Eyja 1920, var lausamaður, verkamaður í Brekkuhúsi á því ári.
Þau Halla giftu sig 1921, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu í Hlíðarási við Faxastíg 3 við fæðingu Guðbjargar Höllu 1922, í Arnarnesi við Brekastíg 36 1927 og 1949. Þau fluttu til Reykjavíkur, bjuggu síðast í Hólmgarði 45.
Gísli lést 1956 og Halla 1962.

I. Kona Gísla, (10. febrúar 1921), var Halla Árnadóttir frá Miðgrund u. Eyjafjöllum, húsfreyja, saumakona, f. 19. júlí 1886, d. 13. mars 1962.
Barn þeirra:
1. Guðbjörg Halla Gísladóttir, f. 5. ágúst 1922 í Hlíðarási. Maður hennar Baldur Skarphéðinsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.