Gísli Gíslason yngri (Heiðardal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Gíslason í Heiðardal og á Drangey, sjómaður, netagerðarmaður fæddist 5. október 1904 og lést 17. júní 1992.
Foreldrar hans voru Gísli Gíslason bóndi, formaður, vélstjóri, síðar verkamaður í Eyjum, f. 27. nóvember 1866 á Kotferju í Sandvíkurhreppi í Flóa, d. 29. desember 1935, og kona hans Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, síðar í Heiðardal, f. 6. október 1868 á Kalastöðum, d. 30. desember 1945.

Börn Guðrúnar og Gísla:
1. Sigurþór Gíslason, f. 11. nóvember 1896, d. 1. mars 1915.
2. Anna Gíslína Gísladóttir húsfreyja á Hæli, f. 6. júlí 1898, d. 11. september 1984.
3. Sigurður Gíslason sjómaður, f. 23. apríl 1900, d. 4. mars 1966.
4. Víglundur Gíslason, f. 23. ágúst 1902, d. 28. mars 1977.
5. Gísli Gíslason sjómaður, f. 6. október 1904, d. 17. júní 1992.
6. Þóra Gísladóttir í Drangey, f. 18. nóvember 1906, d. 31. ágúst 1982.
7. Hinrik Gíslason formaður, vélstjóri, f. 4. júní 1909, d. 16. mars 1986.
8. Ingibjörg Gísladóttir verkakona, saumakona, f. 28. desember 1911, d. 28. maí 2003.
Fóstursonur þeirra var
9. Sigurþór Margeirsson bifreiðastjóri, bifvélavirkjameistari, forstjóri, f. 27. október 1925, d. 22. ágúst 2002.

Gísli fór snemma til sjós, var á Bifröst frá Hafnarfirði 1920, þá tæpra 16 ára. Síðar var hann á Surprise , Loka, Víkingi, Síðu-Halli.
Hann fluttist til Eyja með foreldrum sínum 1927 og bjó hjá þeim í Heiðardal 1930 og 1934.
Faðir hans lést 1935 og fjölskyldan flutti að Drangey, Kirkjuvegi 84. Þar bjó Gísli með móður sinni 1940 og við húsvitjun 1945, en Guðrún móðir hans lést 30. desember á því ári.
Gísli bjó síðan með Ingibjörgu systur sinni, Þóru systur sinni og Sigurþóri systursyni sínum í Drangey.
Hann var sjómaður, háseti, stýrimaður á ýmsum bátum í Eyjum, Þorgeiri Goða, Karli, Hilmi, Erninum, Garðari, Leó og Helga. Síðar vann hann við netagerð.
Hann fluttist til Reykjavíkur við Gos, en síðan til Stokkseyrar með Ingibjörgu og Þóru systrum sínum.
Ingibjörg og Gísli urðu dvalarmenn á Hrafnistu í Reykjavík 1989 og þar lést hann 1992.
Gísli var ókvæntur og barnlaus, en systursonur hans Sigurþór Margeirsson ólst upp hjá foreldrum hans og kom Gísli þar fljótt í föður stað, er Gísli afi Sigurþórs dó.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.